Urriðaholtsstræti 42, 210
Verð |
84,9
|
Stærð |
108
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
785
|
Skráð |
19.9.2023 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
1163354
|
Hraunhamar kynnir til sölu fallega og vandaða þriggja herbergja 108,2 fermetra íbúð á jarðhæð með sérsólpalli í glæsilegu tíu íbúða lyftuhúsi í Garðabæ. Íbúðin er tilbúin til afhendingar.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Eignin er 108,2 fermetra og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og aðalrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Sér geymsla innan íbúðar.
Frá eldhúsi er útgengt á sirka 35 fm sólpall. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.
Mjög góð staðsetning í lokuðum botnlanga og góð fyrir útivistarfólk þ.s örstutt er í útivistarparadísina í Heiðmörk og liggja stígar þangað. Einnig er falleg gönguleið í kringum Urriðakotsvatn og í næsta nágrenni eru 2 golfvellir. Stutt er í verslun og þjónustu í Kaupstað.ATH. MYNDIR ERU AF SÝNINGARÍBÚÐ OG ERU BARA TIL VIÐMIÐUNAR, SJÁ NÁNAR TEIKNINGAR ÍBÚÐAR. Allar innréttingar eru frá VOKE3 og kvartsteinsplata í eldhúsi.
Vönduð heimilistæki frá AEG. Extra lofthæð, gólfhiti, innfelld lýsing í loftum.
Flestum íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Innangengt í bílakjallara úr sameign.Húsið er byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt.Nánari lýsing íbúðar 101:Forstofa með fataskápum.
Sérlega rúmgott flísalagt
baðherbergi með innnréttingu. Stór sturta með innfeldum tækjum.
Svefnherbergi með fataskápum.
Stórt
hjónaherbergi með fataskápum.
Sérþvottahús og innaf þvottahúsinu er geymsla.
Stofa/eldhús í opnu rými, falleg innrétting, eyja og vönduð eldunartæki frá AEG, útgengt út á rúmgóða verönd.
Borðstofa björt og rúmgóð.
Bílastæði fylgir þessari eign.
Lyftuhús með góðu aðgengi.
Viðhaldslétt hús með ál/tré gluggum og klætt að utan með álklæðningu.
Húsið er á fjórum hæðum og eru einungis 10 íbúðir í húsinu.
Rúmgóðar og skjólsælar svalir.
Geymslur, bílageymsla og hjólageymsla á jarðhæð.Um er að ræða fallega og vel staðsetta íbúð með verönd sem snýr til suðurs. Rennihurð út á verönd.
Sérlega vandaðaðar íbúðir sem vert er að skoða. _____________________________________________________________________________________
BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isHelgi Jón Harðarson sölustjóri, s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076, arsaell@hraunhamar.is Smelltu hér til að fá frítt söluyfirlit.