Kötlufell 11, 111

Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá

Verð 29,9
Stærð 63
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 476
Skráð 23.2.2019
Fjarlægt 12.3.2019
Byggingarár 1974
mbl.is

Miklaborg kynnir: Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin var nýlega mikið endurnýjuð að innan. Hús einangrað og klætt að utan og gluggar endurnýjaðir. Virkilega nýtískuleg og falleg eign.

Forstofa með fatahengi. Stofan er björt með stórum gluggum en svalir inn af stofu eru yfirbyggðar og ekki inn í fermetrum íbúðar en geta nýst sem vinnukrókur eða annað.  Einnig er möguleiki að bæta við litlu herbergi innst í stofu en gluggi væri þá út á svalir. Eldhús og tæki voru öll endurnýjuð árið 2017. Innréttingin er hvít með ljósri borðplötu, vinnuljósi og flísum á milli innréttinga og innbyggðri uppþvottavél. Borðstofa er við enda eldhússins og tengist stofunni. Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum með rennihurðum. Baðherbergi er allt flísalagt, innrétting með vaski, upphengt salerni og baðkar. Parket og hurðir eru frá 2017. Á jarðhæð er sér geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.  

Húsið er klætt og einangrað að utan, gluggar hafa verið endurnýjaðir. Þak var viðgert árið 2017. 

Sameiginleg bílastæði fyrir framan húsið þar sem hver íbúð er með sérmerkt stæði fyrir sig.

Stutt í alla þjónustu svo sem leikskóla, skóla, líkamsrækt, heilsugæslu, matvöruverslanir, sundlaug og Elliðaárdal.

Hér er um að ræða vel skipulagða íbúð sem hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt. 

Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33