Sunnusmári 23, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 65,9
Stærð 76
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 865
Skráð 27.2.2024
Fjarlægt 8.3.2024
Byggingarár 2020
mbl.is

# EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING #
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega  bjarta, glæsilega og einstaklega vel umgegna 2-3ja herb. íbúð á 1. hæð (ekki jarðhæð) lyftuhúsi með góðum suð-austur svölum. Eignin er 76,2  m2 skv skrá fasteignamats Þjóðskrár er vel skipulögð og rúmgóð 2ja herbergja íbúð með möguleika á tveimur svefnherbergjum í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2020) í  vönduðu hverfi í Smáranum þar sem stutt er í alla þjónustu verslanir og útivistarsvæði.


Nánari lýsing.
Forstofa er með góðum innbyggðum fataskáp.
Komið er inn í opið og rúmgott alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu.
Eldhús er með hvítri innréttingu með innfelldri uppþvottavél,innbyggður ísskápur ásamt frysti,  innrétting er frá AXIS, eldhústæki frá Gorenje, m.a. Span-helluborð og ofn í vinnuhæð.
Stofan er opin og björt og rúmar vel bæði setustofu og borðstofu, skv. teikningu var gert ráð fyrir svefnherbergi nr. 2 þar sem nú er sjónvarsrými. Íbúðin er horníbúð sem tryggir góða glugga á tvo vegu og gott birtuflæði inn í stofu og önnur rými. Gengið er út á svalir frá stofunni sem snúa í suð-austur.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum alveg upp í loft. 
Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með gólfhita, handklæðaofni, walk-in sturtu og innréttingu frá AXIS, blöndunartæki frá Mora. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu.

Harðparket er á öllum rýmum fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt. Húsgjöld eignarinnar er 14.674 kr á mánuði , innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, allur hitakostnaður, þrif sameignar, húseigandatrygging, rafmagn í sameign ,og  húsfélagsþjónusta.

Sameign er afar snyrtileg, lyfta er milli hæða. Stór og góð vagna-hjólageymsla er í sameign auk þess sem eigninni fylgir sér geymsla (6,6 fm2).

Húsin eru hönnuð á nútímalegan máta, mynddyrasími frá GIRA og stýring ljósa og hita með SMART lausn. Mjög vandaðar sérsniðnar gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum. 

Þetta er einstaklega björt og glæsileg eign sem vert er að skoða.  Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 8222 123 eða helga@fastlind.is 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20