Skipholt 50C, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð Tilboð
Stærð 114
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 10.8.2023
Fjarlægt 1.9.2023
Byggingarár 1985
mbl.is

Fold fasteignasala sími 5521400 kynnir.
Skipholt 50C, 105 Reykjavík - miðsvæðis í borginni.

114,2 fm skrifstofurými á 2. hæð - 4 skrifstofuherbergi, í suð-vesturhluta hússins ásamt hlutdeild í sameign alls hússins og sameign hæðarinnar.

Aðkoma að húsinu er um sameiginlegt stigahús sem gengið er í um inngang á miðri austurhlið og er inngangur á aðra eignarhluta einnig um stigahúsið beint frá götu. Lyfta er í húsinu og sameignin snyrtileg.
Lóðin er fullfráfengin með malbikuðum bílaplönum, stéttlögðum göngustígum og gróðri. Við húsið er mjög góð aðkoma og í því er lyfta
Húsnæðið er hljóðeinangrað með loftræstikefi og slitsterkum teppum á gólfi. Það er skráð sem læknastofur. Fjórar læknastofur eru með sameiginlegri biðstofu með afgreiðsluaðstöðu og eldhús/kaffistofu með ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar eru hannaðar af Eyjólfi Bragasyni arkitekt. Snyrtingar eru þrjár og ræstikompa frammi á gangi, sameiginlegar með öðrum eignarhlutum á hæðinni. Hússjóður eignarhlutans er 53.000 kr. á mánuði.

Húsnæðið er mjög vel um gengið og ber þess merki að til þess hefur verið vandað í upphafi.

Fold fasteignasala 552-1400, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is
Viðar 694-1401 / Hörður 899-5209 / Gústaf Adolf 895-7205/   www.fold.is
Við erum á Facebook.

 

Myndir

Mynd 1