Ránargata 44 201, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá

Verð 64,9
Stærð 73
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 884
Skráð 21.2.2024
Fjarlægt 8.3.2024
Byggingarár 1933
mbl.is

Miklaborg kynnir: Bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð þessum vinsæla stað í gamla vesturbænum í 101 Reykjavík í örstuttu göngufæri við Miðborgina og Grandann. Stofa og mjög stórt svefnherbergi og annað minna með glæsilegu útsýni til sjávar. Baðherbergi og eldhús voru smekklega endurnýjuð fyrir tveimur árum. Ein íbúð á hæð. Sérlega gott skipulag. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Gengið er inn garðmegin við húsið og er inngangurinn sameiginlegur með kjallara, fyrstu hæð og risi. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.

Komið er í fallegan gang sem tengir allar vistarverur íbúðarinnar. Á hægri hönd er lokað flísalagt eldhús sem var smekklega endurnýjað fyrir um tveimur árum. Það er með hvítum innréttingum og góðum opnanlegum glugga.

Næst er stofan sem er björt og rúmgóð og þar við hliðina er mjög stórt svefnherbergi með góðum skápum. Á móti því er baðherbergið sem var smekklega endurnýjað fyrir um tveimur árum með fallegum gráum flísum, handklæðaofni, upphengdu salerni, sturtu og opnanlegum glugga. Minna svefnherbergið er einnig með góðum skápum. Það er með fallegu útsýni til sjávar og fjalla. Parket er á öllum rýmum nema eldhúsi og baði. Skv. eignaskiptayfirlýsingu tilheyrir geymsla undir útitröppum íbúðinni.

Sérstakega vel skipulögð og skemmtileg íbúð á þessum vinsæla stað í gamla vesturbænum í stuttu göngufæri við miðbæinn og fjöl

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23