Arkarvogur 8, 104
Fjarlægð/Seld - Eignin var 27 daga á skrá
Verð |
89,9
|
Stærð |
101
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
887
|
Skráð |
1.9.2023 |
Fjarlægt |
29.9.2023 |
Byggingarár |
2022 |
mbl.is |
|
BÓKIÐ EINKASKOÐUN. Skipti möguleg á dýrari eign.Hér má sjá myndband úr íbúðinniFasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna til sölu 3ja herbergja nýleg (Byggt 2022) og rúmgóð íbúð í lyftublokk með bílastæði í bílakjallara að Arkarvogi 8, 104 Reykjavík.
Íbúðin er á 2. hæð með glæsilegu útsýni yfir voginn.
- Glæsilegt útsýni
- Björt íbúð sem snýr í suður
- Rúmgott alrými
- Sér þvottahús innan íbúðar
- Bílastæði í bílakjallara
- Lyfta beint frá bílastæði og upp að íbúð
- Rúmgóð geymsla í kjallara
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
- Nýlegt hverfi sem liggur vel við stofnbrautum ásamt útivistarsvæðum, verslunum og skólum
- Gott hverfi í uppbyggingu
Nánari lýsing:
Forstofa: rúmgóð með skáp.
Eldhús: með innréttingu á heilum vegg með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, auk eyju. Borðstofan er í beinu framhaldi af eldhúsi og er með
glæsilegu útsýni yfir voginn.
Stofan: er opin frá eldhúsi. Gluggar á tvo vegu og
útsýni yfir voginn. Stofan snýr í suður með svalir í suður og austur.
Baðherbergi: með upphengdu salerni, sturtu og innréttingu. Flísar á veggjum og á gólfi.
Þvottahús: með gólfflísum og tengt fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi: er með fataskápum og er 14,5 fm samkvæmt teikningu.
Herbergi: er með fataskáp og ágætlega rúmgott, 9,3 fm.
Íbúðin er öll parketlögð en gólfflísar á votrýmum. Parketið heitir Oean+ XL8 Bloom Natural frá Álfaborg. Undirlagið er Excellent Plus 2,5 mm.
Íbúðin er skráð 101,4 fm hjá HMS og byggingarár 2022. Þar af er geymslan skráð 8 fm.
Gæludýr eru leyfð í húsinu.
Bílastæði í bílageymslu fylgir. Aðgengi frá stæði í bílakjallara og upp í íbúð er til fyrirmyndar. Gert er ráð fyrir lagnaleiðum / kapalstigum við loft fyrir almennar raflagnir og lagnaleiðir að hleðslustöðvum þ.e.a.s. möguleiki fyrir eigendurna/húsfélag að leggja strengi og setja upp hleðslustöð á merktum stæðum íbúða.
Sér geymsla 8 fm er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Djúpgámar eru fyrir rusl.
Hér má sjá upplýsingar um hverfið frá Reykjavíkurborg: https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skipogbygg/skjol/vogabyggd2greinargerd-10.pdf
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.