Vallarbraut 12, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 55,0
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 652
Skráð 6.3.2023
Fjarlægt 10.3.2023
Byggingarár 2021
mbl.is

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir í einkasölu Vallarbraut 12, 260 Reykjanesbæ
 
Glæsileg 3ja herbergja íbúð, með sérinngangi á þriðju hæð á frábærum stað í Reykjanesbæ.
Íbúðin er skráð 84,4 fm., þar af geymsla skráð 3,3 fm., Yfirbyggðar svalir með opnanlegu gleri eru 13,3 fm. sem eru ekki inni í skráðum fermetrum.
 
Íbúðin skiptist í skiptist í rúmgott anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og góðar yfirbyggðar suður svalir sem eru 13,3, fm. og eru ekki inni í skráðum fermetrum.
Hiti í gólfum og aukin lofthæð. Frábær staðsetning þar sem afar stutt er í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, íþróttasvæði, skóla og leikskóla.

 
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Grindinni.
Gólfefni eru flísar og parket
Geymsla fylgir íbúðinni á 1. hæð
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 1. hæð.
Merkt bílastæði fyrir hverja íbúð.
Tengi er fyrir hleðslustöð bifreiða við bílastæði íbúðarinnar.
 

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum skáp.
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og vandaðri rennihurð út á svalir. Svalir eru yfirbyggðar með opnanlegu gleri.
Eldhús er með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, keramikhelluborði og vönduðum ofni í vinnuhæð. Eldhús tæki eru frá AEG, Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og blöndunartækjum frá Grohe.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Rúmgott herbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Gólf og veggir flísalagðir með ljósum flísum. Í baðherbergjum er sérsmíðuð baðinnrétting með handlaug, blöndunartækjum og spegli. Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Stór sturta með ílöngu niðurfalli í gólfi, skilveggur úr hertu gleri. Vélrænt útsog er frá baðherberginu með hljóðlátri viftu.
Þvottahús: Gólf í þvottaherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og sér innrétting með skolvaski.
 
Gólf: Hágæða harðparket er á gólfum, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss og anddyris. Gólf í geymslum eru með epoxy sem nær uppá veggi.
Innréttingar: Skápar og innréttingar eru útbúnir úr 16 m grá plasthúðuðu spónaplötuefni að innanverðu. Sýnilegi fletir eru útbúnir úr efni frá Innval/Egger. Black-Brown Thermo Oak H1199 ST12.
Borðplötur eru úr kvarsi. Plast frá Innval/Egger light concrete F272 ST9. Höldur á frontum frá Innval/Egger svartar mattar Inréttingar eru framleiddar hjá Grindinni ehf Grindavík.
Innihurðir: Hurðir verða með lykillæsingu og hurðarhúnar verða úr burstuðu stáli. Hurðir eru hvítlakkaðar, með felli þröskuldum og með yfirfelldum hurðarkörmum og gereftum.
Raflögn: LED Ljós fylgja í eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og anddyri, ýmist ljóskúplar og innfelld lýsing. Í öðrum rýmum innan íbúðar er skilajós.
LED Útiljós eru á stigapalli og svölum,.
Ljósleiðaratenging er í hverri íbúð. Lagnaleiðir fyrir bílhleðslustöðvar eru frágengnar í jörðu fyrir hverja íbúð.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, í síma 420-4050 / 894-2252 og á netfanginu es@es.is
 
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25