Þykkvaflöt 1, 820
Fjarlægð/Seld - Eignin var 37 daga á skrá
Verð |
42,9
|
Stærð |
150
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
286
|
Skráð |
28.4.2021 |
Fjarlægt |
4.6.2021 |
Byggingarár |
1949 |
mbl.is |
|
Eignin er seld með fyrirvara. Domusnova og Guðný Guðm., lögg. fast. s. 8216610, gudny@domusnova.is kynna 150 fermetra bjart einbýlishús í nýlegu hverfi á Eyrabakka. Íbúðarhúsið er 110 fermetra sérlega bjart á tveim hæðum ásamt 40 fermetra bílskúr. Efri hæðin skiptist í baðherbergi og þrjú björt rúmgóð herbergi. Neðri hæðin skiptist í forstofu, WC og þvottahús, lítið herbergi, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Húsið er byggt 1949 en var flutt á steyptan nýjann grunninn upp úr aldamótum eða um 2001 með þá undirstöðum og löggnum frá þeim tíma. Þegar húsið sett á nýjan grunnin er það mikið endurnýjað eins og t.d. ofnar, rafmagn og utanhússklæðning. Skriðkjallari er undir húsinu. Byggður var frístandandi 40 fermetra bílskúr 2012. Nánari upplýsingar veita:Guðný Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali / s.821 6610 / gudny@domusnova.is
Íbúðarhús:
Neðri hæðin.
Forstofa/WC/þvottaaðstaða. Byggð var forstofueining við húsið 2012 og er inn af henni WC og þvottaaðstaða með opnanlegum glugga.
Eldhús. Hvít eldri Ikea innrétting. Tveir góðir gluggar í sitt hvora átina.
Lítið herbergi sem auðvelt er að taka niður, til að gera stærra opið rými. Lokuð geymsla undir stiga.
2 stofur samliggjandi með horngluggum sem gerir þær sérlega bjartar.
Hol þar sem gengið er upp á efri hæðina. Fallegur gluggi við
stigann miðjann.
Blönduð eldri gólfefni.
Efri hæðin. Gangur með glugga og parketi á gólfum.
3 svefnherbergi. Herbergin eru björt og öll með fullri lofthæð að mestu, rúmgóð og með parketi á gólfum.
Bað er með glugga, sturtu í baðkar, innréttingu undir vaski og til hliðar.
Bílskúr: er eitt rými með gluggum til norðurs og austurs í botninum. Innkeyrsluhurð og hliðar inngangshurð. Steypt gólfplata. Rafmagn og hiti ekki komin á.
Hús að utan: ásamt bílskúrnum er álklætt með grásanseraðri báru. Hvítir gluggar. Ál áfellur eru ósettar á glugga en til staðar. Ryð fyrir ofan glugga frá eldri áfellum.
Lóð: er 750 fm snyrtileg leigulóð með grasflötum og djúpu malarplani fyrir framan bílskúrinn. Timburverönd til suðurs með timbur skjólveggjum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.