Jöfursbás 7C - 501, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 44 daga á skrá

Verð 99,9
Stærð 103
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 973
Skráð 30.1.2024
Fjarlægt 15.3.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

***DOMUSNOVA KYNNIR * ÍBÚÐ VIÐ HAFIÐ***LAUS STRAX***SÝNUM SAMDÆGURS***

Jöfursbás 7C, Reykjavík - íbúð 0501.  Glæsileg 2ja herbergja glæsileg þakíbúð á 5. hæð (efstu) í lokuðu lyftuhúsi, með stæði í bílageymslu stórum þaksvölum með möguleika fyrir heitan pott og aðrar stórar svalir til suðurs.  Íbúðin er alls 102,7fm, en þar af er geymsla 14,5fm. (merkt 0017) í kjallara og bílastæði í lokaðri bílageymslu er merkt B034. Íbúðin er afar skemmtilega hönnuð með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Svefnherbergi íbúðar er rúmgott með miklu skápaplássi. Alrými íbúðar rúmar vel stofu, borðstofu og glæsilegt eldhús með stórri eldunareyju. Tvennar þaksvalir íbúðar eru annars vegar 8,5fm út frá stofu og hins vegar um 48fm út frá eldhúsi. Glæsilegt útsýni til sjávar út frá stofu og borðstofu.  Gólfsíðir fallegir gluggar og gólfhiti í allri íbúðinni. Mjög mikil lofthæð er í íbúðinni allri í sama formi og þak hússins sem er steypt, á að endurspegla formið á öldugangi til marks um staðsetningu eignarinnar við sjávarströndina.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Lýsing íbúðar:
Forstofa 
rúmgóð með innbyggðum fataská.  Útgengt á stórar þaksvalir frá forstofu.
Eldhús mjög rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu frá VOKE.  Opið inn í borðstofu og stofu þar sem eru stórir gólfsíðir gluggar til suðurs og vesturs með stórkostlegu útsýni.  Innrétting er vönduð með granit borðplötu.
Stofa og borðstofa með gólfsíðum gluggum og útgengt á báðar þaksvalir íbúðarinnar með stórbrotnu útsýni til sjávar og fjalla.
Baðherbergi flísalagt 60x60 flísum frá Epson bæði gólf og veggir með vandaðri innréttingu með granitborðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum skápum.
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 

Íbúðirnar í húsinu eru mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 51 fm-138 fm. Bílastæði fylgir mörgum íbúðum og næg stæði fyrir utan hús.
Nánari upplýsingar á https://gufunesid.is/

Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða  adalsteinn@domusnova.is
Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgfs., s. 665-8909 eða go@domusnova.is
Sölvi Þór Sævarsson lgfs., s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Margrét Rós Einarsdóttir lgfs., s 856-5858 eða margret@domusnova.is
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða oc@domusnova.is
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða ingunn@domusnova.is
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891 8660 eða vilborg@domusnova.is
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is

NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Crystal Diamond Polished Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe
Íbúðirnar afhendast með vönduðu parketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21