Skorradalur, Indriðastaðahlíð, 311

Verð Tilboð
Stærð 200
Tegund Sumarhús
Verð per fm
Skráð 16.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2008
mbl.is 1251158

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Stórglæsilegt 184m2 heilsárshús með gestasvítu og bílskúr á æðislegum útsýnisstað í Skorradalnum, þaðan sem útsýni er til Snæfellsjökuls, upp á Skarðsheiði og að Skessuhorni !  Miklar timburverandir úr harðvið eru í kringum húsið. Bílaplan er mynstursteypt og lagt er fyrir snjóbræðslu.   Heitur pottur er í verönd !   * Húsið stendur á 3352m2 grónu eignarlandi og fylgir eigninni samliggjandi 6403m2 eignarland ! 
* Húsið er skráð 184m2.  Árið 2023 var byggð falleg 15m2 kamínustofa við húsið með gólfsíðum gluggum.

* Um er að ræða afar vandaða og fallega eign þar sem engu hefur verið til sparað.    Húsið er í topp ástandi.

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

* Húsið er byggt 2008 og skiptist í aðalhús, gestasvítu og bílskúr:


Aðalhús:
* Forstofa með flísum á gólfi og góðum skápum.
* Stofan er stór og björt með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Aukin lofthæð er í stofu og innfeld lýsing í loftum.
* Kamínustofa með flísum á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum.
* Eldhús með parketi á gólfi og fallegri eikar innréttingu með graníti á borðum. Aukin lofthæð er í eldhúsi  og innfeld lýsing í loftum.
* Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Falleg innrétting, baðkar með sturtutækjum og upphengt salerni.
* 3 svefnherbergi með parketi á gólfi og góðum skápum. 
* Þvottaherbergi með flísum á gólfi og  góðum innréttingum.

Gestasvíta ca 28,2m2 sem telur: 
* Rúmgott herbergi með parketi  á gólfi, innfelldum skápum og glugga.
* Salerni með flísum á gólfi, glugga og upphengt salerni.
* Sturtuherbergi með flísum á gólfi og veggjum, tveimur sturtum, handklæðaofn og glugga.
* Gangur með flísum á gólfi, vaski og innréttingu.

Bílskúr er cirka 36.8m2,  upphitaður með máluðu gólfi og góðum innréttingum.

* Hitaveita er á staðnum.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/






 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21