Arkarvogur 8, 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 89,9
Stærð 101
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 887
Skráð 25.8.2023
Fjarlægt 8.9.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Opið hús: Arkarvogur 8, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 02 12.  Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. ágúst 2023 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Starfsmenn fasteignasölunnar taka á móti ykkur.
Fasteignasalan BÆR;
 Auður & Ólafur kynna: til sölu 3ja herbergja nýleg og rúmgóð íbúð 212 í Arkarvogi 8, 104 Reykjavík, 2 hæð með útsýni yfir voginn í lyftublokk með bílastæði í bílakjallara. Húsið var byggt 2022.
BÓKIÐ EINKASKOÐUN. Skipti möguleg á dýrari eign. 

§ Glæsilegt útsýni yfir voginn
§ Björt íbúð sem snýr í suður
§ Rúmgott eldhús & stofa í alrými
§ Sér þvottahús innan íbúðar
§ Bílastæði í bílakjallara
§ Nýlegt hverfi sem liggur vel við stofnbrautum ásamt útivistarsvæðum, verslunum og skólum


Nánari lýsing:
Forstofa: rúmgóð með skáp. 
Eldhús: með innréttingu á heilum vegg með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, auk eyju. Borðstofan er í beinu framhaldi af eldhúsi og er með glæsilegu útsýni yfir voginn.
Stofan: er opin frá eldhúsi. Gluggar á tvo vegu og útsýni yfir voginn. Stofan snýr í suður með svalir í suður og austur.
Baðherbergi: með upphengdu salerni, sturtu og innréttingu. Flísar á veggjum og á gólfi. 
Þvottahús: með gólfflísum og tengt fyrir þvottavél.
Hjónaherbergið: er með fataskápum og er 14,5 fm samkvæmt teikningu.
Minna herbergið: er með fataskáp og ágætlega rúmgott, 9,3 fm.
Íbúðin er öll parketlögð en gólfflísar á votrýmum. Parketið heitir Oean+ XL8 Bloom Natural frá Álfaborg. Undirlagið er Excellent Plus 2,5 mm.
Íbúðin er skráð 101,4 fm hjá HMS og byggingarár 2022. Þar af er geymslan skráð 8 fm.
Gæludýr eru leyfð í húsinu.

Bílastæði í bílageymslu fylgir. Aðgengi frá stæði í bílakjallara og upp í íbúð er til fyrirmyndar. Gert er ráð fyrir lagnaleiðum / kapalstigum við loft fyrir almennar raflagnir og lagnaleiðir að hleðslustöðvum  þ.e.a.s. möguleiki fyrir eigendurna / húsfélag að leggja strengi og setja upp hleðslustöð á merktum stæðum íbúða.
Sér geymsla 8 fm er í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Djúpgámar eru fyrir rusl.
Hér má sjá upplýsingar um hverfið frá Reykjavíkurborg: https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skipogbygg/skjol/vogabyggd2greinargerd-10.pdf

Það vantar því miður götuskilti í þessa götu og því getur reynst erfitt að finna þetta. Ef þið komið keyrandi frá Húsasmiðjunni er þetta fyrsta (ómerkta) gatan eftir að þið komið yfir umferðarljósin til vinstri (í átt að voginum).

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35