Lyngholt 4, 621
Verð |
39,9
|
Stærð |
76
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
527
|
Skráð |
2.5.2024 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
1259601
|
EIGNAVER 460-6060
Lyngholt 4, Hauganesi. ***Nýbygging***
Falleg, ný og vönduð þriggja herbergja íbúð í raðhúsi á einni hæð á góðum stað á Hauganesi, Dalvíkurbyggð. Íbúðin er 75,7 fm. Nánari lýsing:
- Íbúðin er í suður enda hússins og skiptist í forstofu, geymslu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónherbergi, barnaherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyriri þvottavél og þurrkara. Gengið er úr stofu út á verönd sem snýr til austurs.
Forstofa, flísar á gólfi.
Geymsla, parket á gólfi.
( auðvelt að nýta sem svefnherbergi ) Hol/gangur, parket á gólfi.
Eldhúsinnrétting er vönduð, hvít innrétting frá finnska framleiðandanum Elega, innbyggður ísskápur, ofn, vifta, og uppþvottavél. Parket á gólfi í eldhúsi.
Baðherbergið er fallegt, flísar á gólfi og hluta veggja. Handklæðaofn, upphengt WC og "walk in" sturta. Innnrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi eru tvö, parket á gólfum herbergja og fataskápur í þeim báðum.
Stofan er með parketi á gólfi og úr stofu er farið út á lóð sem snýr til austurs.
ATH, íbúðin uppfyllir skilyrði laga um hlutdeildarlánAnnað:
- Tvö steypt bílastæði fylgja hverri íbúð, hiti í bílaplani.
- Gert er ráð fyrir rafmagnshleðslustöð við bílastæði, þ.e. gert er ráð fyrir því í rafmagnstöflu og ídráttarrör lagt svo íbúðar hafi möguleika á uppsetningu hleðslustöðvar. ( hleðslutöð fylgir ekki með )
- Parket og flísar á gólfum.
- Lóð verður jöfnuð og þökulögð.
- Gólfhiti er í íbúðum ( lofthitakerfi )
- Þrefalt gler í gluggum.
- Sameiginlegt lagnarými/ inntaksrými er fyrir miðju hússins.
- Sér mælir er á neysluvatni.
- Athugið, myndir af eign eru tölvuteiknaðar og eru eingöngu til viðmiðunar.
Íbúðirnar í Lyngholti 4 - 10 Hauganesi afhendast fullbúnar sumarið 2024 samkvæmt skilalýsingu frá verktaka.
Verktaki : Katla ehf.
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu
Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum :
Begga S: 845-0671 / begga@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is