Snorrabraut 62, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 71 dag á skrá

Verð 79,9
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 951
Skráð 14.2.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Borg fasteignasala kynnir til sölu nýjar glæsilegar íbúðir að Snorrabraut 62, Reykjavík. Snorrabraut 62 er 35 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með kjallara. Íbúðirnar skiptast í stúdíó, 2ja -3ja herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefni. Afhending í nóv-des 2023.  

Íbúð 204 er glæsileg 84,0 fermetra 3ja herbergja íbúð á annarri hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og sérgeymslu í sameign. Íbúðin skiptist eftirfarandi, íbúð74,6 fm og sérgeymsla í sameign  merkt 0030 9,4 fm, samtals 84,0 fm. 
Leyfi fyrir gæludýrahaldi er í húsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð, með aðgengi frá lóð. 


Skipulagsgjald. Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni, þegar það verður lagt á. 
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með Cembrit plötum, Equitone plötum og litaðri báruklæðningu. Gluggar á 2. – 4. hæð eru álklæddir timburgluggar frá Byko hf. Á jarðhæð eru álgluggar frá BYKO. Í kjallara er tæknirými og sérgeymslur íbúða. Helstu gönguleiðir utanhúss eru með snjóbræðslu.

ATH. Myndir eru úr sýningaríbúð


Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins með því að smella hér https://snorrahus.is/



Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 brandur@fastborg.is  og Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali 788-9030 ulfar@fastborg.is  hjá BORG fasteignasölu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
 

Innréttingar og efnisval
Íbúðirnar skilast fullbúnar að innan. Á gólfum öðrum en votrými er parketlagt með Tundra Oak Plank parketi frá Agli Árnasyni. Baðherbergi- og þvottahúsgólf, eftir því sem við á, skilast flísalögð með 60x30 flísum frá Agli Árnasyni, 1. flokkur (Concept 30*60, Greige. Íbúðarhurðir í stigagöngum verða ECS 30 DB42 yfirfelldar, 90 cm á breidd.

Innihurðir
Innihurðir og karmar eru lakkaðar hvítar, 80 cm, Prum Tuer (Harðviðarval), eða sambærilegt. Þröskuldur verður í hurðaropum á baðherbergi.
Innréttingar
Allar innréttingar og fataskápar eru frá HTH.

Eldhús
Innréttingaeiningar verða í samræmi við sérteikningu frá HTH. Heildar hæð innréttingar er 2278 mm. LED borði í efriskápum og lokað er frá innréttingu upp í loft. Innréttingar eru klæddar með 28 Stockholm, sem er melamin í brúngráum lit. Borðplata á eldhúsinnréttingu er úr steini (Meteor Cold) frá S. Helgasyni. Lamir eru frá Blum, skúffubrautir eru LUX frá Blum m/ ljúflokun. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og lagt fyrir henni. Eldhústæki verða frá AEG eða sambærilegt, keramik helluborð og blástursofn. Gufugleypir yfir helluborði verður frá AirForce eða sambærilegt. Stálvaskur með einnarhandar blöndunartæki verður felldur í borðplötu.

Baðherbergi
Baðherbergi verður flísalagt, gólf og veggir í kringum sturtu í um það bil 2ja metra hæð. Flísar eru 60x30 Concept Greige, 1. flokkur frá Agli Árnasyni. Innrétting verður frá HTH, klædd með 28 Stockholm, sem er melamin í brúngráum lit.. Vatnskassi verður innbyggður með vegghengdu salerni með hæglokandi setu. Handlaug og sturtutæki með Grohe eða sambærilegu blöndunartæki. Sturturými er með vatnshalla og gólfrennu, afmarkaður með glervegg þar sem við á.

Gólfefni
Íbúðir eru afhentar parketlagðar með Tundra Oak Plank harðparketi frá Agli Árnasyni. Gólf baðherbergja er flísalagt sem og gólf og veggir í kringum sturtu upp í loft.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5