Holtsvegur 55, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 72,9
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 806
Skráð 15.5.2023
Fjarlægt 19.5.2023
Byggingarár
mbl.is

***SÝNUM SAMDÆGURS BÓKIÐ SKOÐUN***  Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegar nýjar fullbúnar íbúðir við Holtsveg 55 í Garðabæ. Um er að ræða  17 íbúða lyftuhús með 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðum. Fjórum íbúðum fylgir bílskúr og 5 íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Mjög fallegt hús klætt að utan með flísum og með stórum svölum með glerhandriði og eða veröndum á jarðhæð. Húsið stendur hátt, frábært útsýni og göngufæri í skóla, leikskóla og fallega náttúru.     Íbúð 103 er 3ja herbergja og skráð 90,5fm ásamt 25,2fm vestur sérafnotareit. Íbúð 103 skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvotta/geymslu aðstöðu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar með gólfefnum. Afhending við kaupsamning. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing: Um er að ræða nýbyggingu við Holtsveg 55 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum og hurðum frá Parka og harðparketi frágengið á íbúðargólf einnig frá Parka en á votrýmum verða flísar.  Rúmgóðar svalir með glerhandriði eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð. Húsið er hitað með ofnalögnum nema íbúðir á efstuhæð, þar er gólfhiti með anydrít ásteypulagi og lýsing innfelld á efstuhæð.
Raflagnir eru lagðar og skilað með perustæði í öllum rýmum nema á baði og eldhúsi þar er loftljós.
Heimilistæki: Eldavél, háfur og ofn er frá AEG.  Hreinlætistæki: Eru frá Tengi.
Gólf á bað og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Parka.
Á baðherbergi verður sturta, flísalagður sturtubotn og með sturtuhlið úr gleri þar sem við á. Blöndunartæki eru utanáliggjandi og salerni er upphengt. Þrír veggir á baðherbergjum eru flísalagðir og aðrir veggir í íbúðunum málaðir. Vélknúin loftræsting í aflokuðum rýmum.

Húsbyggjandi: H55 ehf
Aðalverktaki: Verkland ehf
Aðalhönnuður: Kristinn Ragnarsson
Verkfræðihönnun: New nordic Engineering
Raflagnahönnun: Voltorka ehf

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgöngæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.

Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald, þegar það verður lagt á. Skipulagsgjald er 0,3% af brunabótamati íbúðar.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 74.900.-
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20