Furugerði 29 - 212, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá

Verð 72,9
Stærð 83
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 883
Skráð 19.2.2024
Fjarlægt 8.3.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti;
Ný, vönduð og glæsileg 2ja herbergja "loft-style" íbúð á 2. hæð með sérinngangi, mikilli lofthæð og glæsilegu útsýni við Furugerði 29 í Reykjavík. 
Íbúð nr. 212 er seld með gólfefnum og gardínum (sýningaríbúð - endaíbúð)  - Tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Furugerði 29 er tveggja hæða fjölbýlishús, skráð stærð eignar er 82,6 m², þar af er stærð íbúðar 73,6 m² og sér geymsla í bílakjallara er 9,0 m².  Bílastæði í bílakjallara merkt E16 fylgir með. 
Óskið eftir nánari upplýsingum á netfangið elka@fstorg.is eða  Heimasíða verkefnisins (smella hér)

Nánari lýsing; 
Íbúð 212 er í svokölluðum "New York Loft" stíl þar sem bjart alrými er á aðalhæðinni með mikilli lofthæð og háaum gluggum.  Gengið er inn um sérinngang af annarri hæð í anddyri.
Úr anddyri er komið inn í rúmgott og bjart alrými með fallegri eldhúsinnréttingu. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu rými. 
Úr alrými er gengið uppá millilfoft en birt flatarmál hans er 20 m² en er nokkuð stærri þar sem hluti er undir súð. Úr 
Baðherbergi er með fallegri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél (eða sambyggða þvottavél/þurrkara)

Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi.  Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke-3. Í eldhúsi eru borðplötur úr HPL (high pressure laminate) með ljósgráu yfirborði með steináferð frá Kronospan. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
 
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
-- athugið að myndir eru úr sýningaríbúðum en ekki endilega af tiltekinni íbúð --

Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.   Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.is
Upplýsingar veitir Elka í síma 863-8813 / elka@fstorg.is 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26