Auðbrekka 16, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 52 daga á skrá
Verð |
53,9
|
Stærð |
123
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
437
|
Skráð |
19.12.2018 |
Fjarlægt |
9.2.2019 |
Byggingarár |
1967 |
mbl.is |
|
Borg fasteignasala kynnir: Rúmgóð samþykkt, 3ja herbergja endaíbúð á efstu hæð í Auðbrekku. Íbúðin er 123,4 að stærð. Upprunanlega teiknuð 3ja herbergja en er tveggja herbergja í dag. Góð lofthæð og frábært útsýni. Íbúðin er björt og opin "New York style" í blönduðu hverfi.
Áætlað fasteignamat eignar fyrir 2019 er 47.550.000kr
Miklar skipulagsbreytingar eiga sér stað í hverfinu og mun hlutdeild íbúða vaxa mikið í nýju deiliskipulagi.
Inngangur: Inngangur er á hlið hússins, ekki eru aðrir sem nota þennan inngang í dag. Hægt væri að færa inngang íbúðar að bakverðu húsinu.
Forstofa: Á sérpalli fyrir framan aðalinngang. Þar er fatahengi.
Herbergi: Rúmgott herbergi með parket á gólfi. Innaf svefnherbergi er fataherbergi með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Nýlega standsett baðherbergi, með fallegum flísum á gólfi og veggjum. Nýr sturtuklefi og nýleg tæki og innrétting.
Eldhús: Eldhús er hluti af alrými. Góð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og nýlegum tækjum. Stórt barborð sem x komast fyrir með góðu.
Alrými/stofa: Parket á gólfi gott og bjart rými. Mögulegt er að bæta við öðru herbergi í hluta þessa rýmis.
Geymsla/Búr í íbúð með hillum og sérsmíðaðri hlöðuhurð.
Geymsla í sameign: Geymsla er í sameiginlegu tæknirými við innganginn á jarðhæð.
Glæsileg íbúð sem hentar þeim sem vilja búa með rúmt um sig. Gott útsýni og góð lofthæð.
Þetta er "New York style" íbúð í miðju atvinnuhúsahverfi, þar sem samkvæmt skipulagi stendur til að auka fjölbreytni bygginga á svæðinu og heimila byggingu fleiri íbúð.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða gudrun@fastborg.is