Ásvallagata 37, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 69,5
Stærð 71
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 977
Skráð 23.4.2024
Fjarlægt 1.5.2024
Byggingarár 1937
mbl.is

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja 71,1 fermetra íbúð á 2. hæð í góðu og eftirsóttu húsi með fjórum íbúðum á eftirsóttum stað við Ásvallagötu í Reykjavík.
Íbúðin er 56,1 fermetri að stærð og geymsla/herbergi í kjallara er 15,0 fermetrar að stærð.  Sameiginleg falleg lóð til suðurs og þaðan gengið út á opið svæði á milli húsa þar sem m.a. er leikvöllur fyrir börn.

Skv. upplýsingum frá eigendum hefur eftirtalið verið endurnýjað á sl árum.
Eldhúsinnrétting, tæki og raflagnir og tafla í eldhúsi eru nýlega endurnýjuð.
Opnanleg fög í gluggum eru nýleg og nýlegt einfalt gler er í gluggum auk þess sem gluggar eru nýlega yfirfarnir.
Í húsinu starfar mjög öflugt húsfélag, Húsfélag alþýðu sem heldur vel utanum allt almennt viðhald.
Rafmagnstafla fyrir húsið er nýleg og inntak fyrir kalt vatn í húsið er nýlegt.
Klóaklagnir út í brunn voru fóðraðar árið 2023


Lýsing eignar:
Forstofa / hol, parketlagt og rúmgott með fataherbergi innaf með hengi og hillum.
Eldhús, parketlagt og bjart með borðaðstöðu og gluggum til norðurs. Fallegar nýjar gráar Ikea innréttingar með innbyggðri uppþvottavél, viðarborðplötu og nýjum Smeg tækjum með gashelluborði.
Stofa, parketlögð og björt.
Barnaherbergi, parketlagt.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, skápar og baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla/herbergi, með gluggum, parketlagt og er það 15,0 fermetrar að stærð.  Þetta herbergi hafa núverandi eigendur nýtt sem skrifstofu og geymslu.
Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi, stórt með gluggum í tvær áttir, lakkað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Sameiginleg hjólageymsla, rúmgóð með gluggum og útgengi á baklóð.

Húsið að utan lítur vel út og yfirlýsing húsfélags er fyrirliggjandi.

Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, Melabúðina, Kaffi Vest og fleira. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26