Verð | 160,0 |
Stærð | 368 |
Tegund | Einbýli |
Verð per fm | 435 |
Skráð | 18.7.2022 |
Fjarlægt | 12.8.2022 |
Byggingarár | 1974 |
mbl.is |
Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýli með mikla möguleika við Túngötu 23 í Reykjavík. Eignin er skráð 367,9 fm. Húsið hefur verið í rekstri sem gistiheimili og er innra skipulag þess ekki í samræmi við teikningar. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.
Nánari lýsing: Efri hæðin er á tveimur pöllum og skiptist skv. teikningum í anddyri, hol, sólskála, sjónvarpsstofu/dagsstofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi. Í dag er búið að hólfa sjónvarpsstofuna/dagsstofuna niður í þrjú svefnherbergi. Neðri hæðin skiptist skv. teikningum í anddyri, bílskúr, þrjú tómstundarherbergi, geymslu og baðherbergi. Geymslan og tómstundarherbergin hafa verið í útleigu sem herbergi með aðgengi að sameigilegu baðherbergi. Á sameiginlegum gangi með þessum herbergjum er síðan sér íbúð en skv. teikningum skiptist hún í hol, baðherbergi, setustofu, eldhús og tómstundarherbergi. Íbúðin er í útleigu.
Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.