Verð | 29,9 |
Stærð | 167 |
Tegund | Orlofs |
Verð per fm | 179 |
Skráð | 13.2.2017 |
Fjarlægt | 19.5.2017 |
Byggingarár | 2005 |
mbl.is |
ÁS fasteignasala s:520-2600 kynnir:
"LAUST STRAX" Fallegt og vandað 166,7 fm SUMARHÚS með SKÁLA/GEYMSLU og GRÓÐURHÚSI á 4.626,0 fm EIGNARLÓÐ á FRÁBÆRUM ÚTSÝSNISSTAÐ í landi Syðri Brúar í Grímsnes-og Grafningshreppi. HÚSIÐ SJÁLFT er 77,7 fm- GEYMSLAN ca: 77,0 fm og GRÓÐURHÚSIÐ ca: 12,0 fm, samtals 166,7 fm. "HITAVEITA og RAFMAGN".
Athuga skal að fermetrar á geymslu og gróðurhúsi eru ekki inni í fermetrum sem uppgefnir eru í Þjóðskrá.
GÓLFHITI með hitastillum í hverju rými. Lokað svæði með símahliði. Árgjald er kr. 30.000,- sem notað er í að halda vegum í lagi og kostnaður við símahlið.
HÚSIÐ: Forstofa með skápum, flísar á gólfi. Hol með flísum á gólfi. Eldhús með viðarinnréttingu, gashelluborð, ofn, flísar á gólfi. Úr eldhúsi er opið inn í stofu sem er með upptekin loft og fallegum útsýnisgluggum, p.parket á gólfi. Útgengt á stóra timburverönd úr stofu með HEITUM POTTI. Gangur með flísum á gólfi. Baðherbergi með viðarinnréttingu, sturtuklefa flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél á baði. Útgengt af baði á veröndina að heita pottinum. 2 svefnherbergi með skápum í báðum, parket á gólfum. (Möguleg 3 herbergi en búið að oppna eitt til að stækka stofuna, lítið mál að breyta aftur). P.parket er á öllum gólfum, nema á forstofu, eldhúsi og baðherbergi eru flísar. Loft eru upptekin í öllu húsinu.
Aðgengið að geymslunni þar sem inntök hússins eru er utan frá.
Stór timburverönd með heitum potti sem er rafmagnspottur, lítið mál að breyta í hitaveitupott ef vill.
GEYMSLA: Er ca: 70 fm gamalt fjárhús sem bíður upp á mikla möguleika. Búið er að setja nýtt þak og steypa plötu, vantar að einangra og klæða.
GRÓÐURHÚS: Er ca: 12 fm glerhús með matjurtagarði við hliðina.
LÓÐIN: Er vel ræktuð með fallegum gróðri og trjám, matjurtagarður.
HÚSIÐ STENDUR HÁTT Í LANDINU OG ER ÞVÍ FRÁBÆRT ÚTSÝNI TIL ALLRA ÁTTA.
Stutt er í alla þjónustu svo sem verslanir á Selfossi ca. 16,0 km. í sund, golf, veiði, gönguleiðir út í náttúruna í kring og fl. Einnig er stutt til þekktra staða eins og Kerið, Laugavatn, Skálholt, Laufás, Gullfoss og Geysi og svo mætti lengi telja. Vegalengd frá Reykjavík er vel innan klukkutími um Hellisheiði og jafnvel styttri um Nesjavelli.