Reykjastræti 7 (412), 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 158,9
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.218
Skráð 11.10.2022
Fjarlægt 21.10.2022
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir: ** Bókið einkaskoðun í síma 7751515 - Jason Kristinn Ólafsson eða í netfangið: jko@miklaborg.is *** Austurhöfn er vönduð bygging sem er við Reykjavíkurhöfn, næst nýja Edition hótelinu. Sérmerkt stæði í bílakjallara fylgir eigninni sem er rúmlega 130 fm að stærð með tvennum svölum. Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu.

Íbúð 412 er á fjórðu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðin er skráð 130,5 og inní þeirri tölu er sérgeymsla. Fyrir framan íbúð er lokað rými sem nýtist sem aukaforstofa. Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi sem leiðir inn til stofu/eldhús. Frá forstofu er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á tvennar svalir sem snúa í austur með útsýni til Hörpu og vestursvalir í inngarð. Baðherbergi með sturtu, baðkari og rými fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er með fataherbergi. Íbúðin hefur aðgang að einu stæði (nr. 99) í bílageymslu sem ekið er í frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig Hafnartorgs.

Íbúðinni er skilað án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi), sem er flísalagt. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Íbúð er skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.

Nánari upplýsingar veitir:
 
Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15