Ytri-Hóll 2, 861
Fjarlægð/Seld - Eignin var 171 dag á skrá
Verð |
85,0
|
Stærð |
58.119
|
Tegund |
Lóð/Jarðir |
Verð per fm |
1
|
Skráð |
27.8.2020 |
Fjarlægt |
14.2.2021 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Ytri-Hóll 2, Rangárþingi eystra
Um er að ræða jörðina Ytri-Hól 2 sem er 146 ha og á land að bökkum Hólsár sem er mikil og vaxandi laxveiðiá. Veiðiréttindi í Hólsá eru í leigu. Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegu veiðihúsi sem er nýtt og glæsilegt. Á jörðinni er gamalt lögbýli, nú nýtt sem sumarhús, byggt árið 1920 úr timbri. Stærð 63,6 fm. Verkfærageymsla (55,5 fm) er við húsið.
Ytri-Hóll býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Jörðin er á sérlega friðsælu svæði sem er ríkt af fuglalífi. Sjóndeildarhringurinn er víður og fögur sýn til fjalla, þ.á.m. Eyjafjallajökuls, Heklu og Þríhyrnings.
Ræktað land er skráð 5,8 ha. Aðkoma að jörðinni er annars vegar úr norðri frá Landeyjarvegi nr. 252 um Ártúnsveg nr. 2699. Hins vegar er einnig aðkoma að jörðinni frá Landeyjarvegi nr. 252 um Grímsstaðaveg nr. 2549. Fyrir liggur uppdráttur af jörðinni sem staðfestur hefur verið af eigendum aðliggjandi jarða.
Nánari upplýsingar veita
Árni Hilmar Birgisson, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 856-2300, arni@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali í síma 845-9900, halli@log.is
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 862 1996, steindor@log.is