Engihjalli SELD 9, 200

Verð 49,9
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 802
Skráð 6.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1978
mbl.is 1244262

**** Eignin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja 62,2 fm útsýnisíbúð á 10. hæð við Engihjalla 9 í Kópavogi. Íbúðin er með nýlegri vandaðri eldhúsinnréttingu og fataskápum frá Axis. Gólfefni og baðherbergi hefur einnig verið endurnýjað og eru hlýlegar veggjaklæðningar við gang og stofu. Endurbætur eru yfirstandandi á húsinu og meðal endurbóta eru múrviðgerðir, háþrýstiþvottur, málun, endurbætur á svölum, svalahandriðum og á sameign. Þrír áfangar af fjórum eru afstaðnir og sá 4. er fyrirhugaður í sumar og hefur áætlaður kostnaður við þessar endurbætur verið greiddur. Hér er því gott tækifæri til að kaupa góða endurbætta íbúð í vel endurbættu fjölbýlishúsi. 

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt HMS er eignin skráð 62,2 fm.

Nánari lýsing:
Hol 
er með með fatahengi og skáp ásamt öðrum stórum fataskáp og harðparket á gólfi. 
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi. Útgengt á stórar svalir í vestur með glæsilegt útsýni yfir borgina.
Eldhús er með nýlegri vandaðri innréttingu frá Axis með LED lýsingu undir efri skápum, innbyggðum ísskáp, bakarofni, helluborði og gufugleypi, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum frá Axis, harðparket á gólfi. Útgengt á svalir einnig úr svefnherbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri innréttingu og speglaskáp yfir, sturtu og handklæðaofn. 
Þvottahús er á hæðinni og hver með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
2 lyftur eru í húsinu.

Flott eign miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stutt í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24