Jöfursbás 7B - 101, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 58,4
Stærð 64
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 905
Skráð 13.2.2024
Fjarlægt 1.3.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Domusnova og Ingunn Björg kynna glæsilega 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotafleti til suðurs út frá stofu í fallegu lyftuhúsi við Jöfursbás 7B.
Stærð íbúðarinnar er skráð skv. HMS 64,50 fm þar af er 6,6 fm geymsla í sameign.  Íbúðin  skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, útgegnt á timburlagða verönd með skjólvegg úr stofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og eitt svefnherbergi. Aukin lofthæð yfir 280 cm. Gólfhiti er í allri íbúðinni.


Innanhúshönnuður kom að hönnun allra íbúða:
  • Sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE-III
  • Heimilstæki frá AEG
  • Quartz steinn frá Technistone á borðplötum í eldhúsi og á baðherbergi
  • Blöndunartæki frá Grohe - Hreinlætistæki frá Duravit
  • Parket og flísar frá Ebson
Jöfursbás er staðsett í stórglæsilegu nýju íbúahverfi sem nú er að rísa við strandlengju Gufuness í Reykjavík. Hverfið sem er að byggjast upp er suðupottur skapandi greina og einkennist í dag af skapandi iðnaði, kvikmyndagerð, listsköpun og íbúðum. Óþrjótandi útivistarmöguleikar í mikilli náttúruparadís. Í Spönginni má finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Frekari lýsing íbúðar:
Forstofa : Fín forstofa með innbyggðum fataskáp. 
Eldhús : Falleg og vönduð innrétting frá Voke III með Quartz stein á borðplötu og efri skápum sem ná til lofts. Innbyggður ísskápur með frysti, innfelld uppþvottavél ásamt bakaraofni og helluborði, öll heimilistæki eru frá AEG. 
Stofa : Björt og rúmgóð með góðum gluggum á tvo vegu. Utgengt á 8, fm tímburlagðan sérafnotaflöt með skjólvegg. 
Baðherbergi : Flísalagt gólf og hluti veggja. Falleg innrétting með granitborðplötu, speglaskápur á vegg fyrir ofan vask. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi : Rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts. 
Geymsla : 6,6 fm á sér geymslugangi í kjallara hússins.
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara. Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar. Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34