Lyngás 1 D, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 78,9
Stærð 99
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 797
Skráð 12.4.2024
Fjarlægt 19.4.2024
Byggingarár 2015
mbl.is

Björgvin Þór Rúnarsson lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu , Einstaklega glæsilega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð, með sérinngangi af svölum og sér stæði í bílageymslu við Lyngás 1 D í Garðabæ. Eignin er skráð alls  99 fm að stærð og skiptist þannig: Forstofa, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa, þvottahús og sér geymsla í sameign. Niðurlímt gegnheilt parket í allri íbúðinni utan votrýma og fremst í forstofu. Vestur svalir. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Þór Rúnarsson í síma 855-1544 eða bjorgvin@fasteignaland.is.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur. 
Eldhús: Rúmgóð og falleg innrétting með 3cm granít á borðum, niðurfelldum vaski, span helluborði og innbyggðri uppþvottavél sem fylgir. Hvítt gler á milli skápa.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum. Rafknúnar gardínur í stofu fylgja ásamt sjálfvirkri lýsingu í glugga. Útgengt á vestur svalir. 
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi. Öll með góðum skápum.
Baðherbergi: Fín innrétting, sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. 
Þvottahús: Gott þvottahús innan íbúðar með vélum í vinnuhæð og góðum skápum.
Sérmerkt stæði er í lokaðri bílageymslu undir húsinu. Gert er ráð fyrir hleðslustöð í stæði.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Garðabæ. Stutt í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, skóla,leikskóla, sundlaug svo fátt eitt sé nefnt.

Með kveðju.
Björgvin Þór Rúnarsson
Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali.
bjorgvin@fasteignaland.is
00354-855-1544

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27