Verð | 22,8 |
Stærð | 78 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 292 |
Skráð | 23.3.2016 |
Fjarlægt | 24.3.2016 |
Byggingarár | 1978 |
mbl.is |
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, Sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali S:896-5222, kynna: Nýkomin í einkasölu glæsileg 2-3ja herbergja íbúð á 1.hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er nær öll endurnýjuð að innan á smekklegan hátt og er 78,1 fm horníbúð með tvennum svölum. Glæsilegt nýtt eldhús, bað og gólfefni. LAUS STRAX.
Skipulag: Rúmgóð forstofa með góðum stórum viðarskáp með rennihuruðm. Hol. Glæsilegt nýtt eldhús með borðkrók, ný glæsileg hvítlökkuð innrétting með límtrésborðplötum og nýjum tækjum m.a. stálháfur á vegg. Stór stofa með möguleika að stúka af svefnherbergi, útgengt á vestur svalir meðfram íbúðinni. Rúmgott svefnherbergi með hvítlökkuðum skápum og útgengt á suður svalir. Glæsilegt uppgert baðherbergi flísalagt með sturtuklefa, nýjum handklæðaofni, upphengdu klósetti og vaskinnréttingu. GÓLFEFNI: Hvíttað nýtt plastparket á allri íbúðinni (mjög flott) nema flísar á baði. Sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi á hæðinni fyrir 3 íbúðir. Sameiginleg hjólageymsla. Hússjóður: ca.18,000.- Áhvílandi: Íbúðalánasjóður ca. 10,5 millj. greiðslubyrði um 46 þ.mán. TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Allar nánari upplýsingar og sýningu annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali S:896-5222 ingolfur@valholl.is
Ertu í söluhugleiðingum ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 26 ára starfi við fasteignasölu á Íslandi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). Þinglýsingagjald af öllum þinglýstum skjölum kr. 2.000 af hverju skjali. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.