Tjarnargata 47, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 71,5
Stærð 136
Tegund Hæðir
Verð per fm 524
Skráð 5.11.2020
Fjarlægt 6.11.2020
Byggingarár 1926
mbl.is

Opið hús: Tjarnargata 47, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. nóvember 2020 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. Vegna Covid eru áhugasamir beðnir um að mæta með grímu og láta vita af komu sinni - gsm 840 0314 eða einar@provobis.is

Frábær staðsetning í hjarta borgarinnar - Sér inngangur
Glæsileg sérhæð, 136,5 fm á tveimur hæðum við Tjarnargötu 47 - 101 Reykjavík. Bílskúrsréttur.
Frábært útsýni yfir miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin er björt og falleg með fallegum gluggum og mjög snyrtileg.

Löggiltur fasteignasali Einar S. Valdimarsson, sími: 840 0314 eða einar@provobis.is veitir nánari upplýsingar um eignina.

 
Nánari lýsing:
Önnur hæð:
Gengið er inn um sérinngang á annarri hæð þar sem komið er inní litla forstofu með flísum á gólfi. Þaðan er gegnið upp á næstu hæð upp stiga.
Komið er inná lítinn gang þaðan sem gengið er inní eldhús, borðstofu, tvær stofur og rúmgott herbergi. Einnig er lítið gestasalerni á hæðinni.
Eldhús er með eldri viðarinnréttingu, innaf því er í dag eldhúsborð. Inn af stofu er borðstofa inn af eldhúsi.
Borðstofa og stofa eru rúmgóðar og bjart rými með gegnheilu eikarparkerti á gólfi.
Herbergi er rúmgott og með eikarparket á gólfi.
Möguleiki er að útbúa herbergi á hæðinni.

Rishæð:
Stórt og rúmgott baðherbergi er á hæðinni með baðkari, sturtu, salerni og þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er með fallegum glugga sem og velux þakglugga, dúkur á gólfi.
Hjónherbergi er stórt og bjart með gegnheilum gólfborðum, fallegum glugga og þremur velux þakgluggum. Stórt fataherbergi og geymsla er inn af herbergi sem og geymsluskúffur undir súð.

Leyfi hefur verið veitt í nærliggjandi húsum fyrir kvistum í austurátt skv. eiganda.

Þvottavél og þurrkari er á baðherbergi en einnig í sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð en þar er einnig geymsla fyrir íbúðina.

Garður er sameiginlegur. 

Bílskúrsréttur er með þessari eign samkv. eignaskiptasamningi.

FALLEG EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA Í HJARTA BORGARINNAR.
Upplýsingar gefur Einar S. Valdimarsson.  Lögg. fasteignasali. Sími: 840 0314 eða einar@provobis.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum við kaup á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrstu kaup og 1,6%  lögaðilar).
2. Þinglýsingargjald af skjölum sem þarf að þinglýsa - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Þjónustuþóknun fasteignasölu - samkvæmt samningi.
4. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32