Verð | Tilboð |
Stærð | |
Tegund | Lóð/Jarðir |
Verð per fm | |
Skráð | 31.1.2016 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | |
mbl.is |
Allt fasteignir kynna:
Grunnvatn og lindasvæði Fyrir liggur yfirlit Orkustofnunar um vatnafar í Ölfusi; Yfirlit um jarðfræði og vatnafar í Ölfusi og grennd, ásamt jarðfræði kortum, dags. í september 2000. Selvogur og Ölfus eru afar auðug af fersku vatni . Jarðlög eru ung og lek. Regn og leysingar vatn sígur í jörðu og myndar mikla grunnvatnsstrauma. Talið er að heildarrennsli til strandar sé um 22 til 23m3/s. Lítið ber á þessu vatni á yfirborði og fáar lindir og lækir eru í Selvogi og utanverðu Ölfusi, en fjörulindir eru hins vegar miklar. Öflugasta útrennsli grunnvatns er talið vera í nágrenni Þorlákshafnar og undan byggðinni í Selvogi. Á þessu svæði er áætlað, mið að við úrkomu á vatnasviðinu, að grunnvatnsrennslið sé um eða yfir 10 m3/s. Meginstraumur grunnvatnsins erúr norð-vestri og eru vatns bólin vestan byggðarinnar í Þorlákshöfn þau vatnsgæfustu í vestanverðu Ölfusi. Möguleikar eru á að taka ný vatnsból vestar og ofar ef nauðsynlegt kann að reynast vegna stækkunar byggðar innar eða annarrar landnotkunar í framtíðinni. Á svæðinu frá Hlíðarenda og inn undir Hveragerði fer að bera á lindarennsli undan fjallsrótum. Gjöful lindasvæði eru einnig undir Ingólfsfjalli. Stærstu lindasvæðin eru við Riftún, Þóroddsstaði og Vötn, en þau gefa yfir 100 l/s. Eins og sést af tölum hér á undan er kalda vatnið mikil auðlind, hafinn er útflutningur á vatni í vatnsverksmiðjunni að Hlíðarenda.
Landið er einnig verðmætt til annarra nota og sökum staðsetningar.