Verð | 1,5 |
Stærð | 5.375 |
Tegund | Lóð/Jarðir |
Verð per fm | 0 |
Skráð | 4.5.2022 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 2023 |
mbl.is | 1032762 |
Miklaborg kynnir: Glæsilegar sumarhúsalóðir í landi Borga í Borgarbyggð. Svæðið er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi (gegnt Baulu) og því stutt í alla helstu þjónustu. Ekið er að því frá Hringvegi og aðgengi því mjög gott. Sumarhúsasvæðið er í kyrrsælu og fögru fjölbreyttu landslagi sem er að mestu vaxið birki. Mörk svæðisins eru við Munaðarnesland í norðri, Gljúfurá í suðri og Hringvegurinn í austri. Í boði eru lóðir allt frá 2700 fm upp að hektara að stærð og allt þar á milli. Kalt vatn og rafmagn í götu meðfram lóðum en inntaksgjöld ógreidd.
Kiðamúli 8 er 5375 fm að stærð og uppgefið verð miðast við stofngjald leigulóðar en ársleiga yrði kr. 175.000 á ári. Í boði er samningur til 50 ára eða lengur ef óskað er. Hægt er að kaupa lóðina meðan á leigutímabilinu stendur en ársleiga gengur ekki upp í kaupverðið. Skoða má staðsetningu landsins hér og deiliskipulagið hér þar sem má þysja inn og út.
Í boði er að kaupa lóðina strax og þá sem eignarland á 3.500.000 kr .-.
Samkvæmt deiliskipulagi má á lóðum sem eru undir 4500 fm byggja sumarhús að 100 fm. Sumarhús á lóðum sem eru stærri en 4500 fm skulu ekki vera stærri en 120 fm að stærð.
Kalt vatn og rafmagn er í götum en kaupandi greiðir heimtaugagjald.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is