Brautarholt 6, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 67 daga á skrá
Verð |
34,5
|
Stærð |
41
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
833
|
Skráð |
17.8.2017 |
Fjarlægt |
23.10.2017 |
Byggingarár |
1958 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Miðbær kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar 2ja herb íbúðir á fjórðu og efstu hæð við Brautarholt 6 í Reykjavík. Um er að ræða íbúð nr. 403 sem er 41,4m2 og henni fylgja suðursvalir með frábæru útsýni. Húsið er staðsett í grónu hverfi á frábærum stað þar sem blandað er saman íbúðum og þjónustu. Bílastæði eru sameiginleg á lóð hússins. Í nánasta umhverfi má finna flesta þá þjónustu sem fólk þarf á að halda enda einungis fimm mínutna gangur niður á Hlemmtorg.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ingólfur Ingvarsson lgf sími 8937806 eða
ingolfur@midbaer.is
Sigfús Aðalsteinsson lgf sími 8989979 eða
sigfus@midaer.is
Nánari lýsing:
Húsið sem er 4 hæða lyftuhús með 7 íbúðum á efstu hæðinni. Á fyrstu þremur hæðum er skrifstofur og þjónusta. Frágangur íbúða er einstaklega glæsilegur, fullbúnar með öllum gólfefnum Slökkvitæki, reykskynjari og læsanlegur lyfjaskápur fylgir hverri íbúð.
Eignin skiptist í:
Stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi sem er aðskilið frá stofu með rennihurðum. Geymsluskápur í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni. Hjólageymsla er staðsett í porti bakvið húsið.
Lýsing:
Stofa og eldhús er eitt stórt bjart rými með útsýni til suðurs. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Frá stofu er gengið inn í svefnherbergi með stórum fataskáp frá Parka.
Opið og rúmgott eldhús með fallegri innréttingu, keramikhelluborði með 4 hellum, blásturofn með hitamæli, vifta með kolasíu, stálvaski og blöndunartækjum. Eldhúsinnréttingar eru Schmidt frá Parka og eldhústæki frá AEG. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu
Baðherbergi er flísalagt. Góð innrétting. Salerni er vegghengd. Sturta með glerskilrúmi. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð með sturtuhaus og handúðara.
Innréttingar og gólfefni frá Parka.
Hurðar frá Birgisson.
Arkitektateikningar eru frá Tark arkitektum.
Burðarþols- og allar lagnateikningar frá Ferli verkfræðistofu.
Rafmagnsteikningar koma frá Verkís.