Lautasmári 51, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá

Verð 49,9
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 595
Skráð 31.5.2021
Fjarlægt 12.6.2021
Byggingarár 1993
mbl.is


 

Lögheimili Eignamiðlun kynnir í einkasölu: Lautasmári 51, 201 Kópavogur. Um er ræða huggulega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð með suðvestur svölum í fjölbýlishúsi á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfinu. Íbúðin er björt og vel skipulögð með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu, eldhúsi, þvottaherbergi og sér geymslu í sameign sem ekki er inn í fermetrafjölda.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 83,9fm


Nánari lýsing:
Forstofa:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og parketi á gólfi
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgang á suðvestur svalir
Eldhús: Hvít innrétting með tækjum og hvítum flísum á milli skápa og parketi á gólfi
Svefnherbergi: Svefnherbergin er tvö með parketi á gólfi og annað þeirra með skápum
Baðherbergi: Með dökkri innréttingu,hvítar flísar á gólfi og flísalagt með baðkari og veggjum
Þvottaherbergi: Lítið og snyrtilegt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Sér geymsla er í kjallara og sameiginleg vagna og hjólageymsla

Íbúðin er staðsett á góðum stað þar sem stutt er í leikskólann Lækur og í Smáraskóla. Þá er stutt í Smáralindina, Smáratorg, heilsugæslu, iðandi íþróttalíf og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásgeir Þór löggiltur fasteigna og skipasali í síma 772-0102 og í tölvupósti: asgeir@logheimili.is Ertu í fasteignahugleiðingum ? Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni. Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við mig eignum í sölu- eða leigumeðferð. Hringdu núna í síma 772-0102 og pantaðu tíma fyrir þína eign.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Lögheimili eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14