Austurvegur 4, 680
Fjarlægð/Seld - Eignin var 48 daga á skrá
Verð |
31,9
|
Stærð |
166
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
192
|
Skráð |
24.6.2022 |
Fjarlægt |
12.8.2022 |
Byggingarár |
1956 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Mjög skemmtilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum, vel staðsett á Þórshöfn. Húsið sem er 5-6 herbergja er í góðu ásigkomulagi. Komið er inn í forstofu neðri hæðar, innaf forstofu er lítið forstofuherbergi, í báðum rýmum eru náttúruflísar á gólfi. Úr forstofu er gengið upp á efri hæð. Á neðri hæðinni eru rúmgott eldhús með vandaðri eikarinnréttingu, granítborðplötu og vönduðum tækjum. Stofa er tvöföld, hún er parketlögð og úr henni er gengið út á lóð. Á hæðinni er að auki eitt svefnherbergi, endurgert baðherbergi með sturtu, góð innrétting með granít borðplötu. Bakdyrainngangur er lagður náttúrusteini og þar er þvottahús.
Úr forstofu er gengið upp stiga á efri hæðina. Þar eru þrjú svefnherbergi, fataherbergi, skápur á gangi auk rúmgóðs baðherbergis. Á baðinu er hornbaðkar. Um er að ræða glæsilega mikið endurnýjaða eign sem er vel staðsett á Þórshöfn.
Endurbætur á árunum 2004-2005-Gluggar og gler
-Hurðir, gólfefni og innréttingar
-Lagnir endurnýjaðar að mestu
-Nýtt þak 2004
Klæðning í ágætu ásigkomulagi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955