Efra-Skarð 2, 301

Fjarlægð/Seld - Eignin var 270 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 10.390.550
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 0
Skráð 6.4.2020
Fjarlægt 1.1.2021
Byggingarár 2000
mbl.is

ELKA GUÐMUNDSDÓTTIR LGF. OG DOMUSNOVA fasteignasala kynna fallega jörð í Hvalfjarðarsveit.
Efra-Skarð 2 er vel í sveit sett en þó í einungis 45 min fjarlægð frá Reykjavik.
Jörðin er um 900 hektarar að stærð með einbýlishúsi, hesthúsi, reiðskemmu og bogaskemmu.

Áhugaverð jörð með miklum möguleikum!

Einbýlishús:
Fastanr. F2246418.
Húsið eru 78,5 fermetrar og skiptist í forstofu með flísum á gólfi og skáp.
Þvottahús innaf forstofu, dúkur á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og viðarinnréttingu og borðkrók.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi á sólpall.  Í dag er hluti af stofu notað sem þriðja svefnherbergið.  Léttur veggur skilur af herbergi sem auðvelt er að fjarlægja.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.  Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu og flísum á veggjum.
Sólpallur með heitum potti.
Samþykktur hefur verið 40 fm bílskúr við íbúðarhús en hann er óbyggður.
Hitaveita á föstu hagstæðu mánaðargjaldi

Hesthús/fjárhús
120 fm hesthús var endurbyggt frá sökkli árið 2018.  Í húsinu eru 12 eins hesta stíur (1,8x2,8).  Nýjar innréttingar.  Grús er í botni á stíum.  3 stóðhestastíur.  Fóðurgangur 180 cm breiður.
Hesthús er sambyggt hlöðu/reiðskemmu.  Innangengt í hlöðu á tveimur stöðum, annars vegar í reiðskemmu og hins vegar í kaffistofu/heygeymslu.
Húsið er ekki full frágengið, vantar einangrun og klæðningu á veggi að utan.
Mjög góðar reiðleiðir í sveitinni hægt að fara ríðandi í þrjár áttir á góðum stígum og vegum.

Hlaða/reiðskemma:
Hlaðan/reiðskemman er 220 fm og sambyggð hesthúsinu.  Innangengt er á milli húsanna.
Innst í rýminu er verið að útbúa kaffistofu og hlöðu.  Gólfflötur sem nýtist sem reiðskemma er ca 150 fm, undirlag er furuflís.
Hlaðan var negld upp og máluð sumarið 2019.
Í hlöðunni er heitt vatn, kalt vatn og rafmagn.

Bogaskemma:
Bogaskemman er nýtt í dag fyrir folöld en nýtist líka fyrir sauðfé.  Hún rúmar ca 12-15 folöld á fóðri og 35-40 kindur.
Húsið er girt af með netagirðingu svo auðvelt er að setja þær skepnur sem þar dvelja út og inn eftir hentugsemi.

Land:
Jörðin er afgirt með neti og gaddavír sumarið 2018 og er því fjárheld, alls voru girtir af 47 hektarar.  Ræktað land er skv. þjóðskrá 14,7 hektarar.
Beitarhólf eru fjögur, eitt stærra og þrjú minni.
Tvö skammbeitarhólf eru við hesthús, annað girt með netagirðingu og rafmangsstreng (stóðhestaheld), hitt með einum rafmagnsstreng.  Rennandi vatn er í öllum hólfum fyrir utan stóðhestahólf.
Undirlendi á jörðinni var girt sumarið 2019 og eru landamerki skýr.  
Hundruðir hektarar af fjallendi er gjöfult á beit með frábærum gönguleiðum.
Fyrir ofan hlöðuna er fallegur trjálundur þar sem áður stóð hjólhýsi, kyrrðarstaður með fögru útsýni.
Mikið hefur verið gróðursett af trjám og græðlingum síðustu tvö árin.
Fjallendi í eigu Efra-Skarðs eru hundruðir hektara og er fjalllendið frjósamt og gott beitiland.
Margar fallegar gönguleiðir eru á fjallinu og veiði í vötnunum í Vatnadal.

Nánari upplýsingar veita:
Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali / s.863 8813 / elka@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43