Klettagerði 6, 600

Verð 159,9
Stærð 400
Tegund Einbýli
Verð per fm 400
Skráð 2.5.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1972
mbl.is 1259597

Mjög skemmtilegt og einstakt  399,7m2 einbýlishús með bílskúr við Klettagerði 6, á Brekkunni á Akureyri,  ásamt bíósal/fjölnotarými ca 24m2 sem er í garði hússins.
Sjón er sögu ríkari Sjón er sögu ríkari fyrir þá sem leita að skemmtilegu húsi fyrir fjölskylduna með fjölnota rýmum eða þá sem leitast við að sameina fjölskyldu, störf og frístundir!
Eigendur skoða skipti á minni eign.
Bókið einkaskoðun.

Hér er um að ræða afar glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum sem stendur á stórri lóð á góðum friðsælum stað í grónu umhverfi Gerðahverfis II á Akureyri í grennd við Háskólann á Akureyri.
Húsið er eitt af fyrstu einbýlishúsum danska arkitektsins Knúts Jeppesen (1930-2011)og það eina á Akureyri. Það var  teiknað í góðu samstarfi við húsbyggjendur árið 1971. Auk þess að uppfylla óskir þeirra um listamannavinnustofu og rými fyrir flygil, sýnir arkitektinn næmi fyrir umhverfinu og náttúrunni í kring sem einkennist af villtum gróðri og ísaldarklöppum. Byggingarár 1972.

Aðalinngangar í húsið eru tveir á jarðhæð. Annars vegar frá bílastæði að vestan með gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða og hinsvegar að austan. 
Við innganginn að vestan er gestasalerni og fatahengi.
 
Íbúðin er skipulögð í tvö ólík félagsleg rými. Annars vegar svefnherbergishlutinn og hins vegar önnur rými „dagrými“ þ.e.; stofa, eldhús, þvottahús o.fl.
Svefnherbergishlutinn hefur í miðju litla vatnstjörn með hringlaga ofanljósi. Um hana raðast svefnherbergin fjögur og rúmgott baðherbergi. Öll herbergin hafa hallandi þak, burðarvirki þess gerir ráð fyrir grasþaki.
 
Eignin skiptist í:
Aðalhæð:  Tvær forstofur, hol, fjögur svefnherbergi, stofu, rúmgott rými/pallur fyrir ofan stofu með aðgengi út á þak, eldhús, borðkrók, sjónvarpshol og Hannyrðaherbergi/þvottaðastöðu.
Kjallari:  Forstofa, salerni með sturtuaðstöðu, mjög stór salur með fallegum gluggum.  ( Hefur nýst sem íbúð og myndlistarskóli)
Bílskúr/vinnustofa Vinnustofa á tveimur hæðum með sér inngangi, salerni og litlu eldhúsi. Gengið út í garð.
Bíósalur/fjölnotarými í garði með sérinngangi.

Nánari lýsing:
Forstofur eru tvær með fatahengi og flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur hafa öll rúmgóða fataskápa. Barnaherbergin tvö eru sérinnréttuð. Skrifborð er við glugga og sérsniðið rúm þar fyrir ofan við aflangan þakglugga með rimlum sem draga úr sólarljósi inn í svefnrýmið. Parket er á gólfum.
Svefnherbergishlutinn er tengdur dagrýmum með rennihurðum. 
Eldhús/borðkrókur/hannyrðaherbergi/þvottahús ​​​​​​​Öðru meginn er röð skápa úr beyki en hinum meginn til austurs er hannyrðaherbergi/þvottarými, og rúmgott U-laga eldhús. Veglegir skápar eru úr beyki. Inn af eldhúsinu er borðkrókur með útsýni til austurs, Vaðlaheiðar, og suðurs.
Sjónvarpsherbergi í framhaldi að borðkrók, með hurð út í garðinn er að vestan.
Stofan rúmgóð og björt er við hlið sjónvarpsherbergisins með útsýni til vesturs. Milli sjónvarpsherbergis og stofu er laus veggur með tveimur rennihurðum. Opinn arinn er á einum vegg stofunnar. Sá veggur er með íslenskum skeljasandi. Einkennandi í stofu er sjónsteypa í lofti og burðarveggur til norðurs er mynsturmálaður af Erni Inga listamanni og Herði Jörundssyni.
Rými fyrir ofan stofu/pallur  tréstigi leiðir upp á pall fyrir ofan stofuna. Pallurinn er með hallandi þaki. Hægt er að ganga út á flatt þak frá pallinum. Þessi hæð er með samsvarandi gólf og í kjallara, viðarkubbar útbúnir á Akureyri. Þeir eru eftirmynd þeirra þýsku í kjallara hússins.
Baðherbergi þar er baðkar og sturta. Salernið hefur verið endurnýjað.
Gestasalerni er við innganginn að vestan​​​.
Salerni í kjallara með sturtuaðstöðu, einnig er salerni í vinnustofu innaf bílskúr.
Kjallari hússins Stigahol er á jarðhæð niður í kjallara. Hann er með sérinngangi. Kjallari hússins er rúmgóður með röð glugga sem snúa í austur og suður. Hann er opið rými með tveimur burðarsúlum. Hraunað loft og súlur eru einkennandi. Í kjallara er snyrting með salerni, vaski og sturtu. Vinnubekkur með vaski er á einum vegg kjallarans. Innangengt er frá aðalíbúð en auðvelt væri að loka þeirri aðkomu. Gólfið í kjallara er gólfið lagt með viðarkubbum – úr stofni trjáa, innfluttir sérstaklega frá Þýskalandi. Slíkt gólf er vandfundið á Íslandi og er aðeins í Listasafni Íslands svo vitað sé.
Bílskúr er á lóðinni, sem er 20,9m2 fermetrar að stærð. Hátt er til lofts sem myndar geymslupláss við loftglugga.
Vinnustofa  á tveimur hæðum, jarðhæð og kjallara sem er mjög björt, er inn af bílskúr. Innangengt er á milli en hún er líka með sérinngang að vestan. Stór gluggi er til suðurs og loftgluggi sem gefur birtu úr norðurátt. Hægt er að ganga út í garð beint út frá vinnustofunni.  Í kjallara er gluggi til suðurs og sér hljóðherbergi. Gólf eru steypt.
Bíósalur/fjölnotarými í garði með sérinngangi.  Innréttaður sem bíó- og sýningarsalur. Gluggarönd er í lofthæð til suðurs. Sér rafmagnstafla er aðgengileg frá vinnustofu. 

Lóðin er 928,0 m2 fermetrar að stærð. Stór sólpallur er vestan megin við húsið. Garður umlýkur húsið með fjölbreyttum grónum gróðri. Hann var mótaður í gegnum árin með það fyrir augum að búa til skjól og að litir, áferð og form gróðurins spilaði saman.  Arkitektinn hannaði snúrustaurana í stíl við húsið.
Bílastæði er steypt og upphitað, rúmgott fyrir 4 bíla.

Við mótun hússins hafði arkitektinn Norræna húsið í huga. Húsið er glæsilegt og afar virðulegt 399,7m2  einbýlishús á tveimur hæðum á gróinni og ræktaðri lóð á einstökum stað við ísaldarklappir í Gerðahverfi II á Akureyri, nálægt Háskólanum á Akureyri. Í kjallara ( sem er með góðri lofthæð)  er opið rými sem býður upp á marga möguleiki. Það hefur bæði sérinngang og er innangengt frá íbúðinni að ofan. 
Vinnustofa listamanns er inn af í bílskúr hússins og er innangengt þar á milli. 
Bíósalur/fjölnotasalur sem er ca 24m2 er í garði hússins.

Efnisval og litir.
Aðallitir á húsinu er grá hraunsteypa, þakskegg er svart og gluggakarmar og útihurðir í sænsk-rauðum lit. Þak er grænt. Burðarvirki hallandi þaka gerir ráð fyrir grasþökum. 
Ómálaður strigi er á veggjum í húsinu öllu.
Á gólfum í svefnherbergisálmu og stofu eru upprunalegar rauðbrúnar kera­mik­flís­ar frá sænska fyr­ir­tæk­inu Hög­anäs. Annars staðar, þvottaaðstöðu, eldhúsi og sjónvarpsherbergi er korkur hvorutveggja er upprunalegt.
Öll efni og innréttingar voru sérpöntuð, það á við um byggingarefni, salernistæki sem hurðarhúna.
 

Annað: 
-    Húsið hefur verið talsvert endurnýjað á undanförnum árum:
-    Hiti var settur í bílastæði og aðkomur að vestan og austan.
-    Þakið á húsinu hefur verið endurnýjað að hluta á undanförnum árum.
-    Gler í húsinu hefur að hluta til verið endurnýjað á síðustu sex árum.
-    Viðarvörn hefur verið borin á topp hússins, innganga og á endurnýjaða glugga. 

 
Um húsið:
Klettagerði 6 er tvílyft steinsteypuhús, með hallandi þökum og rammgerðu burðarvirki í kjallara. 
Það er hraunað að utan með rauðum gluggakörmum og hurðum úr viði sem mynda ákveðinn ritma eftir hliðum hússins. Gráar viðarfjalir umlykja toppinn á húsinu. 
 
Bílskúr stendur við götu að norðan. Bílskúrshurðin er máluð sænsk-rauð í stíl við húsið.
Umhverfi hússins er einstakt í friðsælli og gróinni götu, við friðað útivistarsvæði og ísaldarklappanna (Kotárklappa) Göngustígur liggur meðfram húsinu að austan, frá Lundarskóla yfir Þingvallastræti við verslunarmiðstöðina við Hrísalund, um ísaldarklappirnar og að Háskólanum á Akureyri.
 
Húsið er í góðu ástandi og umhverfi þess til fyrirmyndar.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49