Fiskislóð 45C, 101

Verð 89,5
Stærð 186
Tegund Atv.
Verð per fm 480
Skráð 28.3.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2001
mbl.is 1240385

EINSTÖK EIGN - ATVINNU/IÐNAÐARHÚSNÆÐI MEÐ STÓRUM INNKEYRSLUDYRUM OG VINNUSTOFURÝMI (ÍBÚÐ) Á GÓÐUM STAÐ - GRANDA 101 REYKJAVÍK..

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 163,0 fm.

Um er að ræða bil merkt 0104 og 0204 í iðnaðarhúsnæði, með tveimur aðskildum fasteignanúmerum, byggt árið 2001, neðri hæð er skráð 76,2 fm. með stórum innkeyrsludyrum, efri hæð er skráð 86,8 fm. (auk millilofts um 23 fm. sem er ekki skráð í birta fermetratölu). Samtals um 186,5 fm.

Nánari lýsing: 
Á jarðhæð er húsnæðið með stórum rafdrifnum innkeyrsludyrum, gott flísalagt rými með rúmgóðri geymslu innst (skráð sem starfsmannaaðstaða), einnig snyrting og sér ræstingaherbergi undir stigagangi. Hægt er að ganga inn í sameiginlegan gang innst úr húsnæðinu. Sameiginlegur inngangur með efri hæðinni er við hliðina á innkeyrsludyrunum.

Efri hæðin er björt og hátt er til lofts. Möguleiki er á að nýta rýmið sem íbúð eða t.d. vinnustofu, skrifstofur eða einhverskonar studio. Parket er á gólfum hæðarinnar nema á baðherberginu, þar eru flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og lítil innrétting. Opinn eldhúskrókur er í alrýmið. Gengið er upp á milliloftið um fallegan breiðan stiga, full lofthæð er uppi á milliloftinu. Afmarkað herbergi er á hæðinni, skráð sem sér skrifstofa. Gólfhiti er á aðalhæðinni.

- Fasteignanúmer eignanna eru 229-6871 og 228-4611.
- Eignarhluti í húsinu öllu er 4,07 % og 3,08 % eða samtals 7,15 % 
- Burðarvirki hússins er stálvirki.
- Gott sprinkler brunavarnarkerfi er í húsnæðinu og húsfélagið er vel rekið með góðan viðhaldssjóð.
- Lóðin er fullfrágengin og malbikuð með fjölda bílastæða, 4.482 fm. sameiginleg með öðrum eignarhlutum hússins. 

Staðsetningin er góð, á eftirsóttum stað í borginni þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár. 

Allar nánari uppl. og skoðun veitir:  Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30