Skyggnisbraut 2, 113

Fjarlægð/Seld - Eignin var 30 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 110
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 727
Skráð 21.2.2023
Fjarlægt 24.3.2023
Byggingarár 2016
mbl.is

ALDA fasteignasala kynnir fallega, bjarta og vel skipulagða 4. herbergja útsýnisíbúð á 3.hæð í nýlega byggðu lyftuhúsi með sérmerktu bílastæði í bílakjallara að Skyggnisbraut 2 í Úlfarárdal. Innréttingar og skápar eru frá danska framleiðandanum HTH. Eignin skiptist í anddyri, alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og sérmerkt bílastæði í bílakjallara. Búið er að draga í rafmagn og gera klárt fyrir uppsetningu fyrir rafmagnshleðslustöð fyrir öll bílastæði í bílakjallara. Góð 4. herbergja útsýnisíbúð á vinsælum stað í Grafarholtinu. Glæsileg fjallasýn til suðurs og austurs.

Fyrir frekari upplýsingar eða bókun á skoðun hafið samband við Hafþór Örn. lögg. Fasteignasala í síma 699-4040,hafthor@aldafasteignasala.is  & Hreiðar Levý lögg. Fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@aldafasteignasala.is

Húsið er byggt árið 2016 og flutt inn í íbúðina árið 2018 og því um nýlega eign að ræða. Þá er glæsilegt útsýni til suð-austurs úr stofu og eldhúsi.


Eignin Skyggnisbraut 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-6408, birt stærð 109.9 fm.

Forstofa: Fataskápur
Alrými: Samliggjandi stofa og eldhús. Útgengt út á svalir úr alrými.
Eldhús: Opið við stofu með fallegri innréttingu með góðu geymsluplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð ásamt aðstöðu fyrir uppþvottavél. Innrétting frá HTH og tæki frá AEG.
Stofa: Opin og rúmgóð með útgengi á svalir í suð-austur. Einstaklega fallegt útsýni úr stofuglugga.
Baðherbergi: Rúmgott. Opin sturta með gleri. Baðinnrétting með góðu geymsluplássi, vask og spegli fyrir ofan vask. Gólf og hluti veggja flísalögð.
Svefnherbergi I: Rúmgott. Fjórfaldur fataskápur.
Svefnherbergi II: Rúmgott. Tvöfaldur fataskápur.
Svefnherbergi III: Rúmgott. Tvöfaldur fataskápur.
Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfi og með góðum geymsluskáp. Innrétting með skúffum og vask.
Geymsla: Innan íbúðar með parketi á gólfi.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sérmkt bílastæði í bílakjallara. Búið er að draga í rafmagn og gera klárt fyrir uppsetningu fyrir rafmagnshleðslustöð.

Gólfefni í íbúðinni er parket nema á votrými eru flísar.

Húsfélagsgjald er nú 22.806kr. Innifalið í húsfélagsgjaldi er almennur rekstur, allur hitakostnaður, allt rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging ásamt þjónustukaupum af Rekstrarumsjón vegna reksturs húsfélags.


Úlfarsárdalur er eitt af  nýjustu hverfum borgarinnar. Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin.
Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi, leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, öflugri félagsmiðstöð, sundlaug og nýju íþróttasvæði FRAM.

Nánari upplýsingar veitir Hafþór Örn. lögg. Fasteignasala í síma 699-4040,hafthor@aldafasteignasala.is  & Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@aldafasteignasala.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26