Tjarnarból 12, 170
Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá
Verð |
53,9
|
Stærð |
122
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
440
|
Skráð |
21.10.2020 |
Fjarlægt |
25.10.2020 |
Byggingarár |
1971 |
mbl.is |
|
Miklaborg kynnir: Falleg og björt 106 fm, 4ra herbergja íbúð á 1.hæð (svalir) í góðu fjölbýli ásamt 17 fm bílskúr á barnvænum stað á Seltjarnarnesi.
NÁNARI LÝSING: Gengið er inn í rúmgott anddyri og sjónvarpshol. Eldhús er með fallegri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og borðkrók. Flísar á milli efri og neðri skápa. Stofan er björt og rúmgóð. Útgengt á stórar flísalagðar svalir í s-austur. Myndavéladyrasími var settur upp í sumar.
Svefnherbergisgangur: Rúmgott hjónaherbergi með góðum opnum skápum. Tvö barnaherbergi og er annað með skápum. Baðherbergið er með baðkari og ágætri innréttingu. Þvottahús er flísalagt, hillur á veggjum og borðplata. Innst á ganginum er lítil geymsla. Allar innihurðir eru nýlegar.
Íbúðinni fylgir snyrtilegur 17 fm bílskúr með rafmagni, hita og rafmagnshurðaopnara.
GÓLFEFNI: Fallegt olíuborið eikarparket er á sjónvarpsholi, eldhúsi, stofu og svefnherbergisgangi. Svefnherbergin eru með parketi. Baðherbergi og bílskúr eru flísalögð.
Í kjallara er góð sér geymsla ásamt sameignlegri hjóla- og vagnageymslu. Skemmtilegt leiksvæði með rólum og rennibraut í garði.
Á húsfundi sl. vor var samþykkt að láta framkvæma ástandsmat fasteigninni Tjarnarból 10-12. Þeirri vinnu er ekki lokið og ekki hafa verið teknar ákvarðanir um framkvæmdir. Hússjóður stendur vel.
VEL SKIPULÖGÐ OG FALLEG EIGN Í BARNVÆNU UMHVERFI
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða
olafur@miklaborg.is