Reykjastræti 7 (412), 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 134,0
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.027
Skráð 12.4.2022
Fjarlægt 29.4.2022
Byggingarár 2019
mbl.is

Miklaborg kynnir: ** Bókið einkaskoðun í síma 7751515 - Jason Kristinn Ólafsson eða í netfangið: jko@miklaborg.is *** Sýni daglega. Austurhöfn er vönduð bygging sem er við Reykjavíkurhöfn, næst nýja Edition hótelinu. Sérmerkt stæði í bílakjallara fylgir eigninni sem er rúmlega 130 fm að stærð með tvennum svölum. Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu.

Íbúð 412 er á fjórðu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar. Íbúðin er skráð 130,5 og inní þeirri tölu er geymsla. Komið er inn í rúmgóða forstofu sem leiðir inn til stofu/eldhús. Baðherbergi með sturtu og rými fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á tvennar svalir sem snúa í austur með útsýni til Hörpu og vestursvalir í inngarð. Íbúðin hefur aðgang að einu stæði (nr. 99) í bílageymslu sem ekið er í frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig Hafnartorgs.

Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um um allt er viðkemur byggingu og umhverfi. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna utan blautrýma (baðherbergi og þvottahús), sem eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur verða við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.

Nánari upplýsingar veita:
 
Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is
 
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is
Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
 
Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali í síma 773-6000 eða thorunn@miklaborg.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11