Austurvegur 21, 800
Fjarlægð/Seld - Eignin var 41 dag á skrá
Verð |
46,9
|
Stærð |
93
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
506
|
Skráð |
19.1.2024 |
Fjarlægt |
1.3.2024 |
Byggingarár |
1957 |
mbl.is |
|
Hafsteinn Þorvaldsson og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Snyrtileg og rúmgóð, eldri tveggja herbergja íbúð með sér inngangi í þríbýlishúsi, steinsteypt 92,6 fm ásamt geymslum. Íbúðin hefur talsvert verið endurnýjuð á undanförnum árum og er staðsett í hjarta bæjarins. Að utan þarfnast húsið viðhalds en endurnýjað járn er á þaki og skolpið nýlega fóðrað.Nánari lýsing:
Rúmgóður stigagangur með stórum glugga og við hann hefur verið útbúið lítið lesrými. Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Snyrtilegt og bjart eldhús í opnu rými við borðstofu- og stofu þar sem hægt er að ganga út á stórar ca 20 fm svalir. Gott baðherbergi með stórri "walk in" sturtu, upphengdu wc og handklæðaofni. Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á íbúðinni sjálfri á undanförnum árum og má þar helst nefna gólfefni, innréttingar, rafmagn o.fl.
Tvær geymslur í kjallara, önnur þeirra með glugga og opnanlegu fagi. Í sameign er þvottahús.
Rúmgóð og björt eign, talsvert endurnýjuð, miðsvæðis á Selfossi.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.