Villingavatn 0, 801

Fjarlægð/Seld - Eignin var 180 daga á skrá

Verð 35,0
Stærð 78
Tegund Sumarhús
Verð per fm 448
Skráð 5.7.2019
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 1997
mbl.is

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali ásamt Fasteignasölunni Bæ kynna í einkasölu snyrtilegt 72,1 fm sumarhús byggt árið 1997 ásamt 16 fm baðhúsi sem byggt var 2005, samtals 88,1 fm. Húsið stendur á skógi vaxinni útsýnis eignalóð, 2552 fm við Villingavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi.  Einnig er einangraður 10 fm geymsluskúr og steypt inntaks- og lagnakompa undir húsinu.  Aðeins 55 mín. akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Virkilega falleg fjallasýn og fallegt útsýni yfir Villingavatn.  Hringihlið lokar af sumarhúsabyggðina og þar er fótboltavöllur, leiktæki fyrir krakka og smábátahöfn þar sem hægt er að geyma báta og leggja að.  Löng sandfjara er við byggðina og vinsælir veiðistaðir víða við vatnið.

Nánari lýsing.
Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Annað gott herbergi með koju, neðri koja breiðari. Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa og handklæðaofni. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými, falleg eldhúsinnrétting og útgengi út á pall úr stofu. Inn af forstofu er lítið þvottahús/geymsla en í forstofu er góður fataskápur. Svefnloft er yfir hluta hússins. Stór sólpallur með skjólgirðingu umlykur húsið og á sólpalli bak við húsið er flísalagt og bjart baðhús þar sem er heitur pottur og sturta. Lóðin er öll kjarri vaxin, grasflöt framan við húsið og gott bílaplan með drenmöl. 

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali s. 891-8891 og 512-3400, hafsteinn@fasteignasalan.is  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"     
  
                                                                                                       
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53