Ytri-Hóll 2, 601
Fjarlægð/Seld - Eignin var 840 daga á skrá
Verð |
75,0
|
Stærð |
373.402
|
Tegund |
Lóð/Jarðir |
Verð per fm |
0
|
Skráð |
13.9.2017 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
Hvammur Eignamiðlun 466 1600 kaupa@kaupa.is
Til sölu jörðin Ytri hóll II í Eyjafirði. Jörðin er í um 8 mín. akstursfjarlægð frá Akureyri og er austan megin í firðinum. Afar víðsýnt og fallegt útsýni er frá jörðinni. Nær hún frá Þverárbökkum uppá fjallsbrún. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands er jörðin 37,2 ha. af ræktuðu landi. Að vatnaskilum er jörðin 108 ha. að stærð en nýtanlegur hluti hennar er um 70 ha.
Íbúðarhúsið byggt 1950 og er það 292,7 m² að stærð. Húsið skiptist í kjallara, hæð og ris og er vel íbúðarhæft.
Í kjallara eru þvottahús, baðherbergi og geymslur. Ekki er full lofthæð í kjallara.
Hæðin skiptist í forstofu, gang, hol, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og búr og geymslu inn af eldhúsi.
Risið skiptist í fjögur svefnherbergi, hol og geymslur undir súð.
Húsið er gamalt og þarfnast mikilla endurbóta, engin verðmæti í gólfefnum eða innréttingum.
Utan eru ummerki um múr og rakaskemmdir – þó er búið að klæða tvær hliðar hússins.
Útihús
Fjós var byggt árið 1958 og er 214 m² að stærð. Fjósið hefur ekki verið í notkun í þó nokkurn tíma. Undir því er haughús að hluta og er það tómt. Áfast við fjósið er hlaða, nokkuð heilleg, steypan í lagi sem og þak. Hlaðan er tvískipt, gamalt hey í suðurhluta en í norðurhluta er búið að hreinsa út og slétta malargólf. Kálfahús er byggt við fjósið til norðurs.
Fjárhúsin eru elstu mannvirkin á jörðinni og standa syðst. Byggð árið 1937 og telur 141,2 m². Þau er heldur léleg. Þó er búið að útbúa ágætt hesthús úr hluta þeirra og áföst 200 m² hlaða er í ágætu ástandi, þ.e.a.s. þak og veggir en gaflar lélegir.
Véla og verkfærageymsla með skráð byggingarári 1978 og í góðu standi. Stærð 202,5 m². Í suður hluta þess er einn stór salur hvar loftin eru tekin upp og stór innkeyrsluhurð til norðurs. Syðri hlut hússins er á tveimur hæðum og þar eru á neðri tvö vinnurými (bílskúrar) og þar er innkeyrsluhurð til austurs og í risi þessa hluta 2ja herbergja íbúð með litlu eldhúsi og baðherbergi.
Önnur vélageymsla er eldri, byggð 1967 og stendur austast á bæjarhlaðinu, 117,5 m². Þar er steypt gólf og geymsluloft yfir að hluta – heldur hrörleg bygging en ágæt til síns brúks.
Geymsluhús með byggingarárið 1950 stendur austan við íbúðarhúsið – timburbygging einnig hrörleg. Stærð 98,2 m².
Landið
Tún og beitiland er fyrir ofan bæjarstæðið og nokkuð upp í heiðina. Góð tún eru vestan við bæjarstæðið bæði fyrir ofan Eyjafjarðarbraut og fyrir neðan. Neðan Eyjafjarðarbrautar er skemmtilegt gróið svæði sem liggur að Þveránni. Þarna eru tjarnir og grónir hagar auk malarnámu sem enn er hægt að nytja.