Seljaland 14, 800

Fjarlægð/Seld - Eignin var 138 daga á skrá

Verð 38,9
Stærð 88
Tegund RaðPar
Verð per fm 441
Skráð 29.9.2020
Fjarlægt 14.2.2021
Byggingarár 2016
mbl.is

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Snyrtilegt og fullbúið raðhús við Seljaland á Selfossi. Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki. Íbúðin er alls 88,2m2 að stærð og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús. Flísar eru á gólfi í forstofu. Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í tveim þeirra. Þvottahúsið er flísalagt, þar er stór innrétting og lúga uppá geymsluloft. Baðherbergið er með flísum á gólfi, veggir eru klæddir með þiljum og þar er rúmgóð gólfsturta og fín innrétting. Parket er á gólfi í stofu og eldhúsi, í eldhúsi er falleg fulningainnrétting og í stofu er útgegnt á baklóð. Lítill sólpallur er á baklóð, lóðin er gróin og mulningur er í innkeyrslu.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10