Verð | 49,9 |
Stærð | 158 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 316 |
Skráð | 21.10.2016 |
Fjarlægt | 1.11.2016 |
Byggingarár | 2007 |
mbl.is |
Anddyri er með fallegum dökkum flísum og stórum fataskáp. Þvottaherbergi sem er innangengt í frá anddyri er rúmgott, flísalagt gólf og stór fataskáp með góðum hirzlum. . Þvottaherbergi er rúmgott, flísalagt gólf og gott skápapláss. Frá anddyri er komið inn í herbergjagang en alls eru fjögur svefnherbergi í íbúðinni öll með fataskápum og eikarparket á gólfum. Baðherbergi með stóru baðkari, sturtuklefa, flísar á gólfi og veggjum og skápainnrétting undir og við handlaug, einnig er þar handklæðaofn, blöndunartæki sturtu var nýlega endurnýjað, vandað tæki frá Tengi. Mjög rúmgóð set- og borðstofa með opnu eldhúsi þar sem er mikið skápapláss og góð tæki. Allt rýmið er með fallegu eikarparketi. Eldhús með eldunareyju og háf þar yfir, nægt vinnupláss, nýlega var ofn og helluborð endurnýjað ásamt blöndunartækjum. Útgengt er á tvennar svalir, annars vegar norðaustur svalir sem nýtast vel sem grillsvalir og stórar suðursvalir frá stofu. Á gólfum svala eru timburflekar.
Sérgeymsla er í sameignarhluta kjallara og einnig er sérstæði í lokaðri bílgeymslu.
Fyrirhuguð viðgerð á húsi að utan sem felst í múr og málningarvinnu er hafin og eru áætluð verkslok næsta vor. Um samþykkta framkvæmd er að ræða sem seljendur greiða.
Nánari upplýsingar veitirJón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is