Lindargata 37, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 46,5
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 516
Skráð 21.6.2016
Fjarlægt 22.6.2016
Byggingarár 2010
mbl.is

Opið hús að Lindargötu 37 íbúð 103 fellur niður í dag þar sem eignin er seld. Miklaborg kynnir: Nýleg 3ja herberga íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi í Skugganum. Vandaður innréttingar og frágangur. Suðursvalir og bílastæði í bílakjallara. Staðsetningin er frábær og örstutt í miðborgarlífið.

Forstofa með skápum. Stofurými með stórum glugga og suðursvalir út frá því. Eldhús er opið inn í stofurými með fallegum innréttingum. Hjónaherbergi með fataskápum. Aukaherbergi inn af stofu. Baðherbergi  er allt flísalagt. Þvottahús er innan íbúðar. Gólfefni eru parket og flísar. Stæði í bílageymslu fylgir ásamt sér geymslu. Sameign er með hjólageymslu.

Innréttingar eru íslensk sérsmíði frá Axis innréttingasmiðju. Borðplötur eru úr kvarsi eða granít. Íbúðin er að fullu hituð upp með gólfhitakerfi. Á baðherbergi er handklæðaofn. Neysluvatnskerfi er með millihitara. Gluggalaus rými eru loftræst með vélrænu útsogi. Hreinlætistæki eru frá Tengi. Á baði er vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum og sturtubaðkar. Í eldhúsi er stáleldhúsvaskur og einnar handar blöndunartæki. Í þvottaherbergi er tengimöguleiki fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir þurrkara með rakaþétti. Skolvaskur fylgir. Myndadyrasími og raftæki í eldhúsi eru að Miele gerð frá Eirvík.

Eignin er skráð 90,1 fm þarf af íbúð 82,8 fm og geymsla 7,3 fm.

Húsið er klætt með báruformaðri málmklæðningu og dökkum flísum. Viðarklæðning er á veggflötum við svalir þar sem auðvelt er að sinna viðhaldi. Vandað álgluggakerfi er í húsinu. Opnanleg fög og útihurðir, þ.m.t. svalahurðir eru úr áli.

Eign fyrir vandláta !

Sýningu á eigninni annast Svan Gunnar Guðlaugsson sölumaður og nemi til löggildingar fasteignasala,  sími 697 9300 eða svan@miklaborg.is  einnig Ásgrímur Ásmundsson löggiltur fasteignasali og hdl.  í síma 865 4120 eða asi@miklaborg.is,

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27