Kirkjusandur 19, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 50 daga á skrá
Verð |
41,9
|
Stærð |
60
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
693
|
Skráð |
22.4.2020 |
Fjarlægt |
11.6.2020 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
Kirkjusandur – Hallgerðargata - Sólborg
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu afar vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum stað í þessu glæsilega húsi "SÓLBORG" við Hallgerðargötu 19 við Kirkjusand í Reykjavík, steinsnar frá miðborg Reykjavíkur og í mikilli nálægð við Laugardalinn.
Um er að ræða 60,5 fermetra (þar af 6,7 fm geymsla) 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með 6,9 fm suður svölum sem skiptist í: Anddyri, baðherbergi. þvottaherbergi, eldhús, stofu og hjónaherbergi.
Sjá nánar á söluvef:
https://105midborg.is/ibudir/solborg?ref=fastmark
Tengil á þessa íbúð:
https://105midborg.is/ibudir/solborg/0308?ref=fastmark
Skilalýsing fyrir húsið Sólborg:
https://105midborg.is/rsrc/pdf/solborg-skilalysing-060619.pdf
Bílastæði í vönduðu bílastæðahúsi fylgir til afnota með hverri íbúð gegn vægu rekstrargjaldi.
Eignin er frábærlega staðsett, útivistargildi svæðisins er mikið og gott aðgengi er að strandlengjunni og Laugardal. Hallgerðargata tengist gömlum og rótgrónum hverfum á Teigunum og Lækjunum og þaðan er stutt í alla verslun og þjónustu auk nálægðar við Laugardalslaug, Grasagarðinn o.fl.
Eignin er byggð úr afar vönduðum byggingarefnum og eru m.a. allir gluggar úr áli og klæðning hússins úr anodiseraðri álklæðningu í brúnum tónum. Klæðningin er sérhönnuð og meðhöndluð með sérstakri aðferð sem skapar áhugaverða óreglu á yfirborði hennar auk þess sem form og samsetning eininganna er fjölbreytileg. Hljóðvist er verulega aukin í eigninni og er gengið mun lengra í þeim efnum en alla jafna tíðkast í íslenskum byggingum.
Byggingaraðili er ÍAV hf. sem er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins. Hönnuðir byggingarinnar eru THG Arkitektar og Studio Arnhildur Palmadottir.
Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólefna utan votrýma er verða flísalögð. Ofnakerfi verður í öllum íbúðum auk handklæðaofna í baðherbergjum. Hús að utan, lóð og sameign skilast fullfrágengin. Afhending íbúða verður í mars 2020.