Pósthússtræti 3, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs
Verð |
87,5
|
Stærð |
129
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
680
|
Skráð |
7.9.2023 |
Fjarlægt |
8.9.2023 |
Byggingarár |
2006 |
mbl.is |
|
Opið hús: Pósthússtræti 3, 230 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 202. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 12. september 2023 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.Karl Jónsson hdl. kynnir: Um er að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 3, ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu. Það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stærð íbúðarinnar 120,7 fm. ásamt sérgeymslu á jarðhæð sem er 8 fm., þannig að heildarstærð er 128,7 fm. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir úr stofu. Svalirnar eru lokaðar með vönduðum svalalokunarbúnaði, stærð svalanna er 13,3 fm. Gólfhiti er í íbúðinni. Með íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu, einnig er rúmgóð sameiginleg geymsla/hjólageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og vel við haldið. Fjölbýlishúsið er mjög vel staðsett við sjóinn og í fallegu umhverfi. Lóðin er stór og vel frágengin, næg bílastæði.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin skiptist þannig:Anddyri, hol, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús/geymsla, stórt opið eldhús, borðstofa, stofa, lokaðar svalir.
Lýsing:Komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi og góðum vönduðum skápum. Frá anddyri er gengið inn í hol. Frá holinu er gengið inn í tvö rúmgóð svefnherbergi og í endanum er rúmgott baðherbergi með sturtu. Frá holi er gengið inn í rúmgott fallegt eldhús með eyju og fallegri innréttingu. Borðstofan er í opnu rými við eldhúsið og stofuna. Stofan er stór og rúmgóð. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni. Bílgeymslan er mjög rúmgóð, en engar súlur eru í bílgeymslunni, þannig að það er mjög auðvelt að athafna sig. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.
Nánari lýsing:Anddyri, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.
Þvottaherbergi/geymsla, flísar á gólfi, ný vönduð innrétting með skolvaski.
Hol, parket á gólfi.
Stofa og borðastofa, parket á gólfi, hurð úr stofu út á yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni.
Svalir, yfirbyggðar 13,3 fm. svalir ( fm. ekki skráðir með í stærð eignar).
Eldhús, parket á gólfi, vönduð innrétting með eyju, granít borðplata á eyju. Stór tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.
Svefnherbergi, parket á gólfi, vandaður fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.
Geymsla, sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, geymslan er 8 fm. að stærð.
Bílastæði, sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.
Hér er um að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu, það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Karl Jónsson hdl. löggiltur fasteignasali í síma 896-2822 eða netfang: karl.jonsson@logmark.is