Lindargata 37, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 20 daga á skrá

Verð 84,9
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 944
Skráð 1.7.2022
Fjarlægt 22.7.2022
Byggingarár 2010
mbl.is

Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Fallega 3ja herbergja 89,9 fm. íbúð á 4. hæð við Lindargötu í Skuggahverfi. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús. Stutt er í alla þjónustu; verslanir, veitingastaði og afþreyingu af ýmsu tagi. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Lindargata 37 er 11 hæða lyftuhús, staðsteypt, einangrað að utan og með steinflísa og timbur klæðningu.
Nánari lýsing íbúðar: 

Forstofa: Gengið er inn í forstofu með þreföldum forstofuskáp og parketi á gólfi.
Stofa: Frá forstofunni er komið inn í borðstofu og setustofu með stórum gólfsíðum glugga til suðurs. Fallegt viðarparket er á gólfi. Úr stofunni er gengið út á góðar suðursvalir. Íbúðin snýr til suðurs og austurs.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Axis með hvítum neðri skápum og dökkum efri skápum og Kvarts stein á borðum. vaskurinn er undirfelldur í borðplötuna, spanhelluborð, vifta og bakaraofn, öll eldhústæki eru frá Miele. 
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum ljosum flísum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Innrétting er hvít með kvarts borðplötu og undirfelldum vaski.
2 x herbergi: Svefnherbergin eru tvö bæði með fallegu parketi á gólfi. Hjónaherbergið er með góðum fataskáp frá AXIS með rennihurðum.
Þvottaherbergi: Þvottahús er með vaski og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stæði í bílageymslu + geymsla: Merkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ( B37 ) ásamt sérgeymslu fylgir íbúðinni. Vagna og hjólageymsla er í sameign.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 89,9 fm, en þar af er íbúðin skráð 82,8 fm og flatarmál geymslu er 7,1 fm. fasteignamat eignarinnar árið 2023 er áætlað kr 77.950.000.-

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24