Kirkjusandur 107, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 36 daga á skrá

Verð 64,9
Stærð 104
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 626
Skráð 14.6.2019
Fjarlægt 20.7.2019
Byggingarár 2019
mbl.is

OPIÐ HÚS Á SKRIFSTOFU MIKLUBORGAR, Lágmúla 4, alla virka daga frá klukkan. 9:00 - 17:00. Lítið við og kynnið ykkur verkefnið hjá sölumönnum Mikluborgar. Miklaborg kynnir vandaðar 2ja til 5 herbergja lúxusíbúðir á einstökum útsýnisstað í þessu glæsilega húsi "STUÐLABORG" við Hallgerðargötu 7 við Kirkjusand í Reykjavík, nálægt miðborg Reykjavíkur og í nálægð við Laugardalinn. Um er að ræða 3ja herbergja 103,7 fm íbúð á 1. hæð. Íbúðin er með tvennum svölum og sjávarútsýni í norður og vestur. Eignin skiptist í anddyri, stofu/eldhús, tvö baðherbergi, eitt til tvö svefnherbergi, fataherbergi, svalir og sérafnotareit. Stofa og eldhús eru í sama opna rýminu. Hægt er að bæta við svefnherbergi á kostnað stofu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í öðru baðherberginu. Fataherbergi og baðherbergi inn af hjónaherbergi. Eignin er skráðir samtals 103,7 fm, þar af er íbúð 94,9 fm og geymsla 8,8 fm. Eigninni fylgja svalir sem snúa í norðvestur (6,5 fm) og sérafnotareitur í suðaustur. Kirkjusandur er endurbyggður borgarhluti við sjávarsíðuna þar sem ný kennileiti Reykjavíkur munu rísa og klára uppbyggingu strandlínu höfuðborgarinnar. Hverfið við Kirkjusand verður blönduð byggð íbúða-, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis og rís það nú á einstökum stað við strandlengjuna í jaðri Laugardalsins, samtengt viðskiptahverfinu í Borgartúni og sjónrænni tenginu við miðbæinn og höfnina. Sannkallað miðborgarhverfi. Byggingaraðili er ÍAV hf. Hönnuðir byggingarinnar eru hin heimsþekkta danska arkitektastofa Schmidt/Hammer/Lassen og íslenska arkitektastofan VA arkitektar.

Heimasíða með nánari upplýsingum: www.105midborg.is  

Stærðir íbúða eru frá 58-254 fm Fjölbreytileiki ræður ríkjum í íbúðabyggingum í hverfinu, hvort sem er litið er til skipulags, útlits, herbergjafjölda eða stærða íbúða, sem þar verða í boði. Stórkostlegt útsýni er til norðvesturs yfir sundin blá, en einnig til suðausturs yfir græna og gróna byggð og útivistarsvæði Laugardalsins.
Stuðlaborg er 77 íbúða bygging í 5 stigagöngum og verður eitt vandaðasta íbúðarhúsið í hverfinu. Innréttingar og tæki af viðurkenndum og vönduðum gerðum.  Borðplötur innréttinga verða úr kvartsteini. Gólfhitakerfi verður í öllum íbúðum og njóta gólfsíðir gluggar byggingarinnar sín þannig eins og best verður á kosið.  Öll rými verða að fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn í íbúðarrými. Loftræstingin tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki. Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar. 
Alls verða bílastæði fyrir rúmlega 1200 bifreiðar í sameiginlegri bílageymslu undir svæðinu, þar sem auðvelt aðgengi verður að rafhleðslustöðvum. 
Í göngufæri við útivistarperluna í Laugardal og stutt í miðbæ Reykjavíkur. 

 

Nánari upplýsingar veita: 

Gunnar S. Jónsson  s: 899 5856 - gunnar@miklaborg.is

Páll Þórólfsson   s: 893 8829 - pall@miklaborg.is

Þórunn Pálsdóttir s:773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Ásgrímur Ásmundsson, s 865-4120 - asi@miklaborg.is

Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jassi@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23