Goðaborgir 8, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
35,9
|
Stærð |
67
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
536
|
Skráð |
26.5.2020 |
Fjarlægt |
2.6.2020 |
Byggingarár |
1996 |
mbl.is |
|
*** Opið hús í Goðaborgum 8, fimmtudag 28.maí kl. 18.30-19.00. Verið velkomin!***
Fasteignasalan TORG kynnir:
Fallega og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum, einstakt útsýni til sjávar frá eldhúsi. Svalir í austur frá stofu. Sérmerkt bílastæði. Allar upplýsingar gefur Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali í gsm: 898-3326,
dorothea@fstorg.is
.
Búið er að endurnýja gólfefni sem flæðir inn í herb., stofu og eldhús. Endurnýjaðar hvítar innihurðar.
Komið er inn í forstofu með fatahengi og skóskáp, flísar á gólfi. Innaf forstofu er lítið vinnurými með rennihurð, skrifborði ásamt fatahengi, flísar á gólfi. Komið er inn á lítið hol opið við stofu og eldhús. Svefnherbergi með fataskápum, rúmgott. Baðherbergi með glugga. Viðarinnrétting með hvítum vaski, flísalögð sturta. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. Stofa er rúmgóð með útgengi út á góðar svalir í austur. Eldhús er með hvítri innréttingu með beykikanti í L. Innbyggð stáluppþvottavél. Hvítur ofn í neðri innréttingu, keramikhelluborð og hvít vifta. Í sameign er sérgeymsla ásamt hjólageymslu. Hér er um rúmgóða 2ja herb. eign að ræða á friðsælum stað í Grafarvogi sem vert er að skoða.
Allar upplýsingar um eignina gefur Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali,
dorothea@fstorg.is
, gsm: 898-3326.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kringum kr. 50.000.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 65.000,- með vsk.