Fífuvellir 24, 221
Fjarlægð/Seld - Eignin var 33 daga á skrá
Verð |
144,9
|
Stærð |
228
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
634
|
Skráð |
10.2.2024 |
Fjarlægt |
15.3.2024 |
Byggingarár |
2004 |
mbl.is |
|
RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð, með bílskúr við Fífuvelli 24 í Hafnarfirði.
Fallegur afgirtur garður með viðarpalli, heitum potti og fallegri skjólgirðingu með lýsingu.
Eignin prýðir í dag sjö herbergi, bílskúrnum hefur verið breytt í tvö svefnherbergi en hægt er að breyta honum aftur. Einnig væri hægt að útbúa íbúð í bílskúrnum eða vinnuaðstöðu.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands skiptist eignin í íbúð 195,5 fm og bílskúr 32,9 fm, samtals 228,4 fm.
Frábær staðsetning á Völlunum við enda botnlangagötu. Eign sem hægt er að mæla með.
Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Hér er hægt að nálgast söluyfirlit strax um eigninaHér er hægt að skoða eignina í 3DNánari lýsing: Forstofa er rúmgóð með góðum skápum og flísum á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús í glæsilegu alrými með aukinni lofthæð og útgengi út á verönd.
Eldhús er með viðarinnréttingu, stæði fyrir uppþvottavél í vinnuhæð, tveimur ofnum, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp, helluborði með háfi yfir. Granít er á borðum.
Fjögur svefnherbergi eru í íbúðarhluta hússins með góðum skápum og flísum á gólfi.
Sjónvarpsherbergi sem hægt væri að nýta sem fimmta svefnherbergið en er opið.
Baðherbergi er rúmgott með hornbaðkari, sturtu og hvítri innréttingu.
Þvottahús er með viðarinnréttingu og stæði fyrir vélar í vinnuhæð.
Gestasalerni er með sturtu og innréttingu.
Innangengt er úr eigninni í bílskúr en honum hefur verið breytt í lítið hol, tvö svefnherbergi og geymslu. Samtals eru sjö svefnherbergi í eigninni.Gólfefni: flísar eru á gólfum í öllum rýmum eignar.
Útgengt er út í garð úr geymslu inn af bílskúr. Einnig er möguleiki og auðvelt að útbúa aukaíbúð/vinnuastöðu í bílskúrnum.
Baklóðin snýr í suður og er vel skipulögð. Lóðin er með viðar sólpalli, heitum potti(nuddpotti), hellulögðu svæði og fallegum gróðri. Einnig er skúr sem hægt er að nýta sem sauna(rafmagn) ásamt geymsluskúr í bakgarðinum. Falleg lýsing er í skjólveggjum.
Hellulagt er fyrir framan eignina, hiti í stétt að framan að hluta til.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í fallega náttúru, grunn- og leikskóla og íþróttasvæði auk allrar helstu þjónustu.
Frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.