Desjamýri 7, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 24,9
Stærð 44
Tegund Atv.
Verð per fm 572
Skráð 30.6.2022
Fjarlægt 8.7.2022
Byggingarár 2015
mbl.is

Einstaklega snyrtilegt 43,5 fm geymslubil með innkeyrsluhurð og gönguhurð í vönduðu húsi við Desjamýri 7 í Mosfellsbæ.
Allt útisvæði er malbikað og afgirt með öryggishliði. Engin vsk-kvöð er á eigninni.


Nánari lýsing:
Innkeyrsluhurðin er 2,8 m * 2,8 m, lofthæð er mest 4,1 m. Innanmál rýmis eru 8,4 m dýpt og 4,8 m breidd.
Húsið er á steyptri plötu og er báruálsklætt timburhús.
Gólfið er flísalagt, gott vinnupláss með vinnuborði og geymsluskúffum. Vaskur með góðum skápum.
Bæði er milliloft og geymsluloft úr stálbitum í bilinu með færanlegum stiga.
Milliloftið er 14 fm og parketlagt með lítill eldhúsaðstöðu, geymsluskáp, setustofu og salerni. 
Geymsluloftið er 4,2 fm og er lokað með hillum.
Búið er að setja 1 aukaofn í bilið.
Hiti og rafmagn er sameiginlegt. Vel rekið húsfélag sem vel er haldið utan um.
Veggir klæddir með krossvið, svo gifsklæddir og málaðir. 
Eitt niðurfall er í hverju rými. Hurð er yleiningahurð. Í þaki eru yleiningar og snýr hvít stálklæðning að lofti. 


Allar nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir Löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 & svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18